Skilmálar

Notkun á vefsvæði MAX1, www.max1.is, er háð eftirfarandi notkunarskilmálum.

Takmörkun á afnotum:

Efnið á vefnum, hvort sem um er að ræða texta, myndir eða annað efni, er í eigu MAX1og verndað af höfundarréttarlögum. Óheimilt er að nota efnið í heild sinni eða að hluta í atvinnuskyni eða til tekjuöflunar en þó er heimilt að vísa í efni á vefnum. MAX1 áskilur sér rétt til að banna tilvísanir sem gerðar eru í atvinnuskyni eða tilvísanir sem til þess eru fallnar að kasta rýrð á MAX1 eða þau vörumerki sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Athygli er vakin á því að öll vörumerki á þessum vef eru skráð vörumerki og er algerlega óheimilt að nota þau, dreifa eða afrita nema með skriflegu leyfi eiganda vörumerkisins.

Efni vefsvæðisins:

Vefsvæði MAX1 inniheldur upplýsingar um þær vörur sem MAX1 býður til sölu hér á landi skv. samkomulagi við birgja hverju sinni. Ekki er tryggt að vörur á þessum vef séu ávallt til á lager og í einstaka tilfellum er eingöngu um að ræða að vara sé seld gegn sérpöntun. MAX1 og birgjar fyrirtækisins áskilja sér rétt til að breyta vöruframboði án fyrirvara, breyta verði án fyrirvara og breyta búnaði án fyrirvara. Upplýsingarnar á vefsvæðinu eru ekki tæmandi og koma aldrei í stað þeirra upplýsinga sem söluráðgjafar MAX1 veita. Max1 leggur áherslu á að upplýsingar á vefsvæðinu séu réttar en afsalar sér ábyrgð á því ef upplýsingar reynast rangar.

Verð á vöru og þjónustu:

Verð vöru- og þjónustu á vefnum er einungis til viðmiðunar. Upplýsingar um verð og lýsing vöru fela ekki í sér bindandi tilboð af hálfu MAX1. Slíkar upplýsingar kunna að vera úreltar og MAX1 beinir því til notanda að sannreyna upplýsingarnar sem fram koma á vefsvæðinu á hverjum tíma hafi hann í hyggju að nýta þær með einhverjum hætti. Verð er ávallt með virðisaukaskatti og getur breyst án fyrirvara og getur verið háð gengi á hverjum tíma.

Vernd persónuupplýsinga:

MAX1 mun ekki undir neinum kringumstæðum selja eða láta þriðja aðila í té umræddar upplýsingar.

Tenging við önnur vefsvæði:

MAX1 ber ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum sem unnt er að tengjast í gegnum vefsvæði MAX1 og eru með öllu ótengdir MAX1 eða þeim birgjum sem MAX1 er umboðsaðili fyrir. Jafnframt ber Max1 ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum öðrum sem veita aðang að vefsvæði MAX1.

Takmörkun ábyrgðar:

MAX1 tekur ekki ábyrgð á fjárhagslegu eða ófjárhagslegu tjóni af neinu tagi sem notandi eða aðrir kunna að verða fyrir vegna notkunar á vefsvæðinu. MAX1 áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála hvenær sem er. Lögsaga og dómstólar: Notkunarskilmálarnir eru háðir íslenskum lögum og íslenskir dómstólar hafa einir lögsögu í ágreiningsmálum sem varða notkunarskilmálana og vefsvæðið.

Svæði

Finndu næsta MAX1 verkstæði

MAX1 verkstæði eru í eða nálægt eftirtöldum sveitarfélögum:

Allt um MAX1

Aðalsímanúmer: 5157190

Persónuvernd

Bókaðu tíma hér

Kt.: 701277-0239 VSK.NR.: 11650

Skráðu þig á póstlista

Skráðu þig á póstlista MAX1 og fáðu forskot á fréttir og tilboð.

Skráðu þig hér

 

EINFALDAR GREIÐSLUR MEÐ PEIPei
Hægt er að greiða með Pei hjá MAX1 Bílavaktinni. Meira hér.

Fylgstu með okkur

   Vélaland

 

    Þjónustuskoðanir og stærri viðgerðir 

MAX1 Bílavaktin býður bílaþjónustu fyrir allar tegundir bíla á öllu höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið er upp á dekk, umfelgun, rafgeyma, smurningu, bremsuviðgerðir, dempara, bílaperur, rúðuþurrkur, rúðuvökva og önnur smærri viðvik sem tengjast bílnum. Komdu eða pantaðu tíma.