Bremsuviðgerðir

Bremsuviðgerðir

Bremsuviðgerðir 

Bremsurnar eru mikilvægasta öryggisbúnaður bílsins. MAX1 Bílavaktin býður allar helstu bremsuviðgerðir fyrir allar gerðir fólksbíla, jeppa, sendibíla og pallbíla þar á meðal:

  • Skipti á bremsuklossum

  • Skipti á bremsudiskum, skálum eða borðum

  • Skipti á bremsudælum
  • Aðstoð við handbremsu og bremsuljós

  • Reglubundið ástandsmat á öllu bremsukerfinu

Við bendum alltaf á önnur atriði sem við komum auga á sem þarfnast lagfæringa svo þú getir gripið tafarlaust til aðgerða og tryggt öryggi þitt, farþega og vegfarenda.

Pantaðu tíma á netinu

Hafðu það einfalt og þægilegt og hafðu bílinn í topp standi með því að panta tíma á netinu.

BÓKAÐU TÍMA
AFBÓKA

 

Senda fyrirspurn á Jafnasel 6 
Senda fyrirspurn á Dalshraun 5
Senda fyrirspurn á Bíldshöfða 5a 
Sendu fyrirspurn á Keflavík 

 

Senda almenna fyrirspurn

 

Hvað kostar bremsuviðgerð?

Kostnaðurinn samanstendur af vinnu og varahlutum – og hvoru tveggja ræðst af gerð, stærð og ástandi ökutækisins.


1. Vinnustundir

Við notum HaynesPro staðlaða verktíma framleiðenda. Þannig færð þú sanngjarna, gagnsæja tímaáætlun sem auðvelt er að bera saman milli verkstæða.

2. Varahlutir

Við notum eingöngu gæða­ varahluti og flytjum mikið inn beint frá traustum þýskum birgjum í samvinnu við Vélaland. Beinn innflutningur þýðir lægra verð án þess að slaka á gæðum.


Viðmiðunarverð*

ÞjónustaVerðbil með vinnu**
Skipti á bremsuklossum að framan 25 000 – 45 000 kr.
Skipti á klossum + diskum á einum öxli 40 000 – 90 000 kr.
Heildarbremsuviðgerð (klossar + diskar á báðum öxlum) 80 000 – 160 000 kr.

* Verðbil er aðeins til leiðbeiningar. Endanleg upphæð ræðst af bíltegund, ástandi og vali á varahlutum.
** Innifalinn er staðlaður vinnutími skv. HaynesPro, varahlutir og vörur eða tæki frá verkstæði (s.s. bremsuvökvi). Öll verð eru með virðisaukaskatti.


Hvernig fer þetta fram?

  1. Verðáætlun áður en verk hefst

    • Þú getur pantað tíma og í framhaldi óskað eftir verðáætlun áður en bíllinn mætir.

    • Ef bíllinn kemur beint til okkar, gerum við verðáætlun á staðnum áður en við hefjum verkið.

  2. Ekkert framkvæmt án samþykkis

    • Komi óvænt viðbótarverk í ljós færð þú alltaf símtal eða skilaboð áður en við höldum áfram.

  3. Verðáætlun fyrir tímabókun

    • Spyrðu Góa snjallsvara um verðáætlun; hann tengir þig við þjónustuborðið og sérfræðingur svarar um hæl.


Af hverju MAX1?

  • Gagnsæi í verði – staðlaðir tímar og verðáætlanir.

  • Gæði varahluta – mikill beinn innflutningur, færri milliliðir, lægri kostnaður

  • Engin óvissa – þú stýrir ákvörðunum, við tökum ábyrgð á verkinu.

Bókaðu tíma í dag og fáðu skýra mynd af kostnaði áður en fyrsta skrúfa er snúin. Við hlökkum til að halda þínum bíl öruggum – á sanngjörnu verði.

Greiðsludreifing

Svæði

Finndu næsta MAX1 verkstæði

MAX1 verkstæði eru í eða nálægt eftirtöldum sveitarfélögum:

Allt um MAX1

Aðalsímanúmer: 5157190

Persónuvernd

Bókaðu tíma hér

Kt.: 701277-0239 VSK.NR.: 11650

Skráðu þig á póstlista

Skráðu þig á póstlista MAX1 og fáðu forskot á fréttir og tilboð.

Skráðu þig hér

 

EINFALDAR GREIÐSLUR MEÐ PEIPei
Hægt er að greiða með Pei hjá MAX1 Bílavaktinni. Meira hér.

Fylgstu með okkur

   Vélaland

 

    Þjónustuskoðanir og stærri viðgerðir 

MAX1 Bílavaktin býður bílaþjónustu fyrir allar tegundir bíla á öllu höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið er upp á dekk, umfelgun, rafgeyma, smurningu, bremsuviðgerðir, dempara, bílaperur, rúðuþurrkur, rúðuvökva og önnur smærri viðvik sem tengjast bílnum. Komdu eða pantaðu tíma.