Flýtilyklar
Hvaða ökutæki getum við þjónustað?
Hvaða ökutæki getum við þjónustað?
MAX1 er með starfsstöðvar í Dalshrauni 5, Bíldshöfða 5a og Jafnaseli 6.
Aðstaða starfsstöðvanna er mismunandi. Stærð, leyfð heildarþyngd og gerð ökutækis ræður því hvaða starfsstöð getur tekið á móti því.
Fólksbílar og jeppar
Við getum þjónustað fólksbíla og jeppa á öllum starfsstöðvum MAX1:
- Dalshrauni 5.
- Bíldshöfða 5a.
- Jafnaseli 6.
Léttir sendibílar og pallbílar
Við getum þjónustað sendibíla og pallbíla sem eru allt að 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd á öllum starfsstöðvum MAX1:
- Dalshrauni 5.
- Bíldshöfða 5a.
- Jafnaseli 6.
Meðalþungir sendibílar og pallbílar
Sendibílar og pallbílar sem eru yfir 3.500 kg en allt að 5.000 kg að leyfðri heildarþyngd geta eingöngu fengið þjónustu hjá MAX1 í Jafnaseli 6.
Húsbílar og minni rútur
Húsbílar og rútur fyrir 10–19 farþega geta eingöngu fengið þjónustu hjá MAX1 í Jafnaseli 6.
Húsbílar og minni rútur geta verið þung og löng ökutæki. Yfirbygging þeirra getur einnig verið síð og margvíslegur búnaður verið undir þeim. Því er ekki alltaf hægt að nota hefðbundna bílalyftu við þjónustu þeirra.
Í Jafnaseli 6 er gryfja sem hentar betur fyrir þjónustu margra þessara ökutækja.
Ökutæki og búnaður sem MAX1 þjónustar ekki
MAX1 sinnir hvorki dekkjaþjónustu né annarri þjónustu fyrir:
- Fellihýsi.
- Tjaldvagna.
- Kerrur.
- Eftirvagna.
- Mótorhjól.
- Vespur.
- Skellinöðrur.
- Reiðhjól.
Hafðu samband áður en þú bókar
Þyngd ökutækis segir ekki alltaf til um hvort hægt sé að taka á móti því. Lengd, breidd, hæð, hjólhaf, yfirbygging og búnaður undir ökutækinu geta einnig haft áhrif.
Gefðu því upp skráningarnúmer og gerð ökutækis þegar þú bókar tíma. Þá getum við staðfest hvort við getum þjónustað ökutækið og hvaða starfsstöð hentar.


