Flýtilyklar
Nokian Hakkapeliitta 01
Nokian Hakkapeliitta 01 nagladekkið aðlagar sig sjálfkrafa að hitabreytingum og vegskilyrðum. Hakkpeliitta 01 er fyrsta nagladekkið í heiminum sem aðlagar sig sjálfkrafa að hitastigi og vegskilyrðum, með það að markmiði að hámarka öryggi, tryggja framúrskarandi akstursþægindi og minnka vegslit við breytilegar vetraraðstæður.
Nokian Hakkapeliitta 01 er einnig fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar.
Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres er fáanleg fyrir þetta dekk. Smelltu hér og kynntu þér Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres.
Hakkapeliitta 01 nagladekkið
Nokian Hakkapeliitta 01 er fyrsta nagladekkið í heiminum sem aðlagar sig sjálfkrafa að hitabreytingum og vegskilyrðum. Dekkið er byggt með Doube Action Stud tækni sem virkar þannig að naglar dekksins fara sjálfkrafa á milli tveggja stillinga eftir hitastigi. Í kulda fara naglarnir út og veita hámarksgrip en við hlýrri aðstæður dragast þeir inn í dekkið, sem dregur úr vegsliti, aksturshljóðum og titring.
Rétt grip Hakkapeliitta 01 fyrir mismunandi aðstæður
Endanlega lausnin byggir á svokallaðri Double Action Stud tækni. Í stað þess að nota stýringar eða hnappa bregst dekkið sjálft við hitabreytingum:
- Við kulda stífnar uppbygging dekksins og ýtir nöglunum út fyrir hámarks grip á ís og snjó
- Við hlýrri aðstæður mýkist gúmmíblandan og naglarnir dragast inn, sem bætir akstur á auðum og blautum vegum
Þessi sjálfvirka virkni gerir dekkið einfaldara, áreiðanlegra og hagkvæmara í framleiðslu án þess að skerða afköst.
Nokian Hakkapeliitta 01 dekkið veitir:
- Allt að 10% betra gripi á ís
- Allt að 5% betra gripi á blautu yfirborði
- Allt að 30% minna slit á vegum
- Minni aksturshljóð

Sérhannaðar rákir dekksins eru hannaðar til þess að hreinsa snjó og bleytu hratt og örugglega undan dekkinu um leið og þær veita öruggt grip í breytilegum vetraraðstæðum.
Smelltu til að skoða myndbandið:
Ný kynslóð vetrardekkja
Hakkapeliitta 01 sameinar margar nýjungar í hönnun:
- Tvær gerðir nagla (Double Stud Technology)
- Miðju-naglar fyrir hröðun og hemlun
- Axlar-naglar fyrir grip í beygjum og akreinaskiptum
- Sérhannaðar 3D rákir sem bæta stöðugleika og grip í djúpum snjó.
- Aramid styrktir hliðarveggir í völdum stærðum sem auka endingu og þol gegn höggum, til dæmis þegar keyrt er í holu.
- SilentDrive™ tækni sem dregur úr hávaða og eykur akstursþægindi.

Hakkapeliitta 01 fyrir fólksbíla og jeppa
Hakkapeliitta 01 dekkið kemur í stærðum fyrir fólksbíla og jeppa og er vottað með Three-Peak Mountain snowflake og Ice Grip merkingum.
Aramid hliðarstyrking er tækni sem eykur endingu dekkja og verndar þau í óvæntum aðstæðum. Efnasamband hliðanna er einstaklega endingargott og inniheldur gríðarsterkar aramíd trefjar. Aramid trefjarnar styrkja hliðarveggi dekksins þannig að það þolir betur utanaðkomandi álag, þar með talið holurnar í götum borgarinnar.
Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres í 1 ár
Hakka ábyrgð® veitir viðskiptavinum sem kaupa ný Nokian Hakkapelitta dekk hjá MAX1 nýtt samsvarandi dekk án endurgjalds ef upprunalega dekkið verður fyrir óhappi. Ef hægt er að gera við dekkið á öruggan hátt verður því ekki skipt út. Viðgerðarkostnaður er ekki innifalin í Hakka Ábyrgð®. Dekkin sem falla undir Hakka Ábyrgð® eru merkt á vefnum í vefverslun.
Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres gildir í 1 ár frá kaupdegi og er tengd tilteknum bíl.
Smelltu hér og kynntu þér Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres.




