Finna dekk

Opna
Finndu dekkjastærðina á þínum bíl og skráðu tölurnar í leitarvélina.

Fólksbíladekk sumar

Nokian Wetproof

Nokian Wetproof
Nokian Wetproof

Nokian Wetproof

Nokian Wetproof. Framúrskarandi öryggi, sérlega hljóðlátt, eldsneytissparandi og endingargott. Nokian Wetproof eru einnig fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar.

Vörunúmer T430800
175/65R14 Nokian Wetproof - 12.690 kr.
195/65R15 Nokian Wetproof - 14.990 kr.
185/60R15 Nokian Wetproof CA 66) - 16.990 kr.
215/60R16 Nokian Wetproof - 26.910 kr.
225/50R17 Nokian Wetproof - 28.790 kr.
225/45R17 Nokian Wetproof - 22.320 kr.
Verðm/vsk pr. stk.
26.910 kr.
Ekkert í boði
    Nánari lýsing

    Nokian Wetproof tryggir framúrskarandi öryggi, er sérlega hljóðlátt, eldsneytissparandi og endingargott. Wetproof er sérhannað sumardekk frá Nokian sem er öruggt og áreiðanlegt. Nokian Wetproof tryggir framúrskarandi öryggi og hugarró á blautum sem þurrum vegum, einn helsti eiginleiki dekksins er frábær stjórn á blautu yfirborði vega.

    Nokian Wetproof

    Smelltu og spilaðu myndband um Nokian Wetproof:



    Fullkomið jafnvægi á milli hámarks þæginda og framúrskarandi öryggis, Nokian Wetproof er jafn öruggt á þurrum sem og blautum vegum við erfiðar akstursaðstæður. Leyndarmálið á bakvið nýja Wetproof dekkið er tækni frá Nokian sem heitir Dual Zone Safety. Með Dual Zone Safety tækninni blandast saman eiginleikar sem veita öryggi á vegum við fjölbreyttar akstursaðstæður og stuðlar að eldsneytissparandi akstri.

    Nokian Wetproof hefur fengið viðurkenningu frá TÜV SÜD sem eru sjálfstæðir dekkjaprófunaraðilar. Viðurkenningin er veitt fyrir framúrskarandi gæði.

    Strangt ferli fyrir fyrsta flokks öryggi

    Sumardekk þurfa að vera áreiðanleg og veita hámarks öryggi frá fyrstu vormánuðum til byrjun hausts. Sérþekking Nokian í öryggi og framleiðslu umhverfisvænna dekkja tryggir að Nokian Wetproof er áreiðanlegt sumardekk.

    Á fallegum sumardögum getur verið auðvelt að gleyma hættum sem leynast á blautum vegum eftir óvænta gróðurskúr. Skyndileg rigningarskýr geta reynst mjög hættulegar þegar vatn safnast í rákir vega.

    Besta sumardekkið í bleytu

    Nýja sumardekkið Nokian Wetproof 215/55 R17 valið BESTA SUMARDEKKIÐ í bleytu af Auto Motor und Sport.

    „Very safe wet performance with high grip level. The best wet braking performance in the test. Very reliable and easy to control also in dry conditions.“

     Nokian Wetproof

    Samkvæmt könnun Nokian hjá viðskiptavinum sínum er það öryggið sem fólk metur mest við kaup á dekkjum og það er einmitt öryggi sem er kjarninn í ströngu þróunarferli Nokian.

    Nokian Wetproof er frábært sumardekk fyrir þurra eða blauta vegi. Nokian hefur bætt enn frekar grip dekksins í bleytu og aukið þannig öryggið til muna. Þróun Nokian Wetproof hefur tekið um 4 ár og prófaðar hafa verið tugir frumgerða víða um Evrópu til þess að upplifa mismunandi veðuraðstæður.

    Dual Zone safety – Fullkomin stjórn við fjölbreyttar aðstæður

    Með Dual Zone Safety tækninni í Nokian Wetproof blandast saman eiginleikar sem veita frábært grip, hámarksþægindi, fyrsta flokks öryggi á vegum við fjölbreyttar akstursaðstæður og stuðla að eldsneytissparandi akstri.

    Dual Zone Safety tækni Nokian Wetproof er skipt í tvö svæði. Annars vegar Stabilty Zone sem er á hliðum dekksins sem gerir aksturinn ánægjulegri og veitir aukinn stöðugleika, og svo hinsvegar Wet Safety Zone fyrir miðju dekksins sem eykur grip á blautum vegum. Það er svo Responsive Lock tæknin sem hleypir vatni undan dekkinu á blautum vegum og veitir þannig aukinn stöðugleika.

     Nokian Wetproof

    Stability Zone – Hljóðlátt og þægilegt í akstri

    Minna veghljóð fæst með einstakri hönnun Nokian á Silent Groove til viðbótar við aukin þægindi. Hönnunin minnkar líka loftmóttstöðuna og kælir um leið yfirborð dekksins. Saman eykur þetta endingu dekksins til muna og þú getur ekið áhyggjulaus lengur.

    Á ytri hlið Nokian Wetproof er Silent Sidewall tækni Nokian sem er einstök að því leiti að hún dempar hljóð og titring frá veginum í akstri. Þetta dregur úr veghljóði fyrir ökumann og farþega.

    Nokian Wetproof Silent Groove 
    Silent Groove design


    Nokian Wetproof Silent Sidewall Technology
    Silent Sidewall Technology

    Wet Safety Zone – Hrindir frá sér vatni

    Þegar vatn kemst í snertingu við ávallt yfirborð mun það reyna að elta það. Coanda tækni Nokian hrindir burt vatni með því að beina því í viðeigandi rákir og kemur þannig í veg fyrir hættur á blautum vegum.

     Nokian Wetproof Wet safety zone

    Nokian Aqua Hybrid eykur enn frekar á öryggið á rigningardögum. Þessi nýja kynslóða dekkjagúmmís er byggð upp til þess að veita frábært grip í bleytu og stuðla að lægri eldsneytiskostnaði.

     Nokian Wetproof Aqua Hybrid

     Veldu öryggi - Kauptu Nokian gæðadekk!

     

     

     

    Svæði

    Finndu næsta MAX1 verkstæði

    MAX1 verkstæði eru í eða nálægt eftirtöldum sveitarfélögum:

    Allt um MAX1

    Aðalsímanúmer: 5157190

    Persónuvernd

    Bókaðu tíma hér

    Kt.: 701277-0239 VSK.NR.: 11650

    Skráðu þig á póstlista

    Skráðu þig á póstlista MAX1 og fáðu forskot á fréttir og tilboð.

    Skráðu þig hér

     

    EINFALDAR GREIÐSLUR MEÐ PEIPei
    Hægt er að greiða með Pei hjá MAX1 Bílavaktinni. Meira hér.

    Fylgstu með okkur

       Vélaland

     

        Þjónustuskoðanir og stærri viðgerðir 

    MAX1 Bílavaktin býður bílaþjónustu fyrir allar tegundir bíla á öllu höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið er upp á dekk, umfelgun, rafgeyma, smurningu, bremsuviðgerðir, dempara, bílaperur, rúðuþurrkur, rúðuvökva og önnur smærri viðvik sem tengjast bílnum. Komdu eða pantaðu tíma.