Leitaðu

Smelltu á flokk

Nýttu þér tilboðin

Max1 á Facebook

Ítarefni
Umgengni við loftþrýstingsnema
Bílar nútímans eru búnir sífellt flóknari búnaði sem er til þess fallinn að auka öryggi, auka sparneytni, minnka mengun, o.s.frv.
Þú ekur ekki á slitnum dekkjum?
Leyndarmál farsælla bílstjóra er að finna í óslitnum dekkjum.
Táknmálið á hjólbörðunum
Hvað tákna allar þessar merkingar á hjólbarðanum - Á hliðum hjólbarða eru skráðar upplýsingar um framleiðanda framleiðslu og eiginleika...

Um Max1

Fréttir
24.01.2012
Hakkapeliitta dekkin frá Nokian 75 ára
Heimkynni Nokian Hakkapeliitta er norðrið. Á hinum norðlægu slóðum íss og snjós hafa finnsku Nokian dekkin um áratugaskeið verið prófuð í aðstæðum sem eru gríðarlega erfiðar og krefjandi. Nokian var einnig fyrst dekkjaframleiðanda til að framleiða vetrardekk árið 1934. Tveim árum síðar hófst framleiðsla á Hakkapeliitta dekkjunum og urðu þau því 75 ára á síðastliðnu ári. Þessi dekk hafa fyrir löngu sannað gildi sitt sem ein allra bestu vetrardekk sem til eru þar sem aðstæður eru krefjandi og veturnir eru harðir og snjóþungir.
12.01.2012
Hafðu hemlana í lagi í vetur
Max1 býður nú 25% afslátt af bremsudiskum og bremsuklossum til 31. janúar. Hjá Max1 er óþarfi að panta tíma. Þú mætir bara á næsta afgreiðslustað Max1 í Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8 og Jafnaseli 6; í Hafnarfirði: Dalshrauni 5 eða á Akureyri: Tryggvabraut 5 og sérfræðingar Max1 vinna verkið hratt og vel og örugglega.
22.12.2011
Gleðileg jól og farsælt nýtt ár
Jólin, hátíð ljóss og friðar eru nú handan við hornið. Við hjá Max1 vonum að þið hafið það sem allra best yfir hátíðirnar og óskum þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári um leið og við þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
12.12.2011
Almennilegir og heiðarlegir hljómar fyrirsögn DV
DV greindi frá því í dag að starfsfólk Max1 í Breiðholti hefði fengið lof vikunnar á neytendasíðum blaðsins. Greinir dagblaðið frá viðskiptavini sem var himinlifandi með hve lipra þjónustu og gott verð hann fékk hjá fyrirtækinu.
18.11.2011
Nokian fer sínar eigin leiðir í vetrardekkjum. Kynntu þér málið!
Úti er veður gott. Veturinn er þó til staðar þó vetrarveðrið láti bíða eftir sér. Hugaðu að vetrardekkjunum í tæka tíð og kynntu þér Nokian vetrardekkin. Nokian er leiðandi í framleiðslu vetrardekkja. Gerðu samanburð. Komdu á Max1 og sjáðu muninn á Nokian hágæðadekkjum.
07.10.2011
Vertu tímanlega í dekkjaskiptum!
Nú er farið að kólna úti svo um munar. Akureyri er hvít og hlíðar Esjunnar eru teknar að fölna æ meira. Það styttist því í vetrardekkjatímabilið og þegar fyrsti snjórinn fellur er vanalega vitlaust að gera á dekkjaverkstæðum landsins. Undirbúðu þig fyrir veturinn og vertu tímanlega í dekkjaskiptum. Á verkstæðum Max1 skiptum við um dekk fyrir þig fljótt og ódýrt. Við ráðleggjum þér í leiðinni ef þú þarft ný dekk.



Þjónusta Max1
Hjólbarðaþjónusta
Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum bremsuklossa og bremsudiska í flestum bifreiðum.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir? Endurnýjun dempara og gorma í flestum bílum.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.


Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli