Umfelgun

Umfelgun er ódýr og snör afgreiðsla

Umfelgun

Umfelgun hjá MAX1 Bílavaktinni er einn af stærstu þjónustuþáttum verkstæðisins. Við umfelgum bílinn á meðan þú hefur það huggulegt í notalegri biðstofu, kíkir í blöðin og færð þér kaffi. Það er ágætt að hafa í huga að oft myndast biðraðir á vorin og haustin og við hvetjum því bíleigendur til að forðast biðraðir og koma tímanlega með bílinn í umfelgun.

Hjá MAX1 starfa vanir menn sem nota toppgræjur til umfelgunar. Þeir sjá um dekkjaskipti fyrir alla fólksbíla, jepplinga, jeppa og sendibíla á dekkjaverkstæðum fyrirtækisins, hvort sem þú ekur um á stálfelgum eða álfelgum.

Til viðbótar við hagstætt verð á umfelgun er jafnvægisstilling að sjálfsögðu innifalin í þjónustunni, enda er mikilvægt að bíllinn sé þýður í akstri eftir dekkjaskipti og titri ekki í stýri. Við leggjum áherslu á faglega umfelgunarþjónustu í öllu okkar starfi.

Pantaðu tíma á netinu

Hafðu það einfalt og þægilegt og hafðu bílinn í topp standi með því að panta tíma á netinu.

BÓKAÐU TÍMA
AFBÓKA


Nokian gæðadekk

Nokian eru gæðadekk sem uppfylla gæðakröfur ESB. Þú getur treyst á Nokian dekk við erfiðustu aðstæðurKeyrðu á öryggi. Kauptu Nokian gæðadekk á frábæru verði.

>> KAUPA NOKIAN DEKK

Verðskrá
15% afsláttur ef keypt eru fjögur ný dekk hjá MAX1.

FÓLKSBÍLAR / JEPPLINGAR

Fólksbílar 12"-16" stálfelga. Umfelgun 4 hjól og jafnvægisstilling. Verð 12.634 kr. 

Fólksbílar 12"-16" álfelga. Umfelgun 4 hjól og jafnvægisstilling. Verð 14.463kr.

Fólksbílar / Jepplingar 17"  Umfelgun 4 hjól og jafnvægisstilling. Verð 17.455 kr.

Fólksbílar / Jepplingar 18"  Umfelgun 4 hjól og jafnvægisstilling. Verð 19.616 kr.

Fólksbílar / Jepplingar 19" Umfelgun 4 hjól og jafnvægisstilling. Verð 22.941 kr.

Fólksbílar / Jepplingar 20" Umfelgun 4 hjól og jafnvægisstilling. Verð 23.273 kr.

Fólksbílar / Jepplingar 21" Umfelgun 4 hjól og jafnvægisstilling. Verð 23.938 kr

Fólksbílar / Jepplingar 22" Umfelgun 4 hjól og jafnvægisstilling. Verð 24.603 kr.

 

 
JEPPAR | SENDIBÍLAR

Sendibílar minni 15-16" Umfelgun 4 hjól og Jafnvægisstilling.   Verð 14.463kr. 

Sendibílar miðstærð og minni rútur 16-17" Umfelgun og jafvægisst. Verð 17.455 kr.

Sendibílar stærri Umfelgun 6 hjól og jafnvægisstilling Verð 24.936 kr. 

Jeppar | Sendibílar 30"-32". Umfelgun 4 hjól og jafnvægisstilling. Verð 21.943 kr.

Jeppar | Sendibílar 32"-35". Umfelgun 4 hjól og jafnvægisstilling. Verð 23.273  kr.

 

Umfelgun á höfuðborgarsvæðinu

Það er stutt að fara í umfelgun því dekkjaverkstæði MAX1 eru víða á höfuðborgarsvæðinu. Okkar menn eru snarir í snúningum. Skoðaðu hvenær er opið hjá okkur og bókaðu tíma.

Bílar nútímans eru búnir sífellt flóknari búnaði sem tryggir öryggi, eykur sparneytni, dregur úr mengun og þar fram eftir götunum. Í dag eru margir bílar, m.a. þeir sem eru framleiddir í Bandaríkjunum, með búnað sem fylgist með og vaktar loftþrýsting í dekkjum bílsins. Þetta er mikilvægur öryggisbúnaður og því er áríðandi að umgangast hann af varúð þegar skipt er um dekk.

Nokkuð ber á því að viðskiptavinir dekkjaverkstæða verði fyrir óþægindum vegna rangra vinnubragða við umfelgun og stundum hefur þessi búnaður orðið fyrir skemmdum af þessum sökum. MAX1 Bílavaktin hefur farið sérstaklega yfir þessi mál með starfsmönnum sínum og vill hvetja bíleigendur til að gæta að þessum búnaði þegar skipt er um dekk. Loftþrýstingsnemar eru staðsettir innan á hverri felgu og fylgist búnaðurinn með loftþrýstingi dekkjanna og sendir skilaboð í mælaborð ef hann er ekki réttur. Nauðsynlegt er að fara eftir verklagi framleiðenda við umfelgun og gæta fyllstu varúðar.

Aðvörun vegna loftþrýstings

Gaumljós sem tekur við skilaboðum er oftast appelsínugult að lit og það kviknar ávallt við ræsingu bílsins. Ljósið logar í stuttan tíma eftir ræsingu en hverfur ef allt er með felldu. Hverfi gaumljósið ekki að þeim tíma liðnum (eða ef það birtist fyrirvaralaust) skal fara eftir leiðbeiningum í handbók bílsins. Dugi þær ekki er nauðsynlegt að athuga skynjara á felgunum. Í sumum tilvikum kann að vera nauðsynlegt að láta „núllstilla“ vöktunarkerfið með sérstökum búnaði hjá þjónustuverkstæði viðeigandi bílaumboðs.

 

Senda fyrirspurn á Jafnasel 6 
Senda fyrirspurn á Dalshraun 5
Senda fyrirspurn á Bíldshöfða 5a 

 

SENDA ALMENNA FYRIRSPURN

Dekk

Svæði

Finndu næsta MAX1 verkstæði

MAX1 verkstæði eru í eða nálægt eftirtöldum sveitarfélögum:

Allt um MAX1

Aðalsímanúmer: 5157190

Persónuvernd

Bókaðu tíma hér

Kt.: 701277-0239 VSK.NR.: 11650

Skráðu þig á póstlista

Skráðu þig á póstlista MAX1 og fáðu forskot á fréttir og tilboð.

Skráðu þig hér

 

EINFALDAR GREIÐSLUR MEÐ PEIPei
Hægt er að greiða með Pei hjá MAX1 Bílavaktinni. Meira hér.

Fylgstu með okkur

   Vélaland

 

    Þjónustuskoðanir og stærri viðgerðir 

MAX1 Bílavaktin býður bílaþjónustu fyrir allar tegundir bíla á öllu höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið er upp á dekk, umfelgun, rafgeyma, smurningu, bremsuviðgerðir, dempara, bílaperur, rúðuþurrkur, rúðuvökva og önnur smærri viðvik sem tengjast bílnum. Komdu eða pantaðu tíma.