Opið til 17:00 í dagBíldshöfði 5aJafnasel 6Dalshraun 5

Um dekk

Heilsársdekk

Heilsársdekk frá Nokian á allar gerðir bíla hjá MAX1 Bílavaktinni. Gæða heilsársdekk á góðu verði. Komdu núna.

Heilsársdekk

4 gerðir passa · 4 til á lager núna

Heilsársdekk frá Nokian

Heilsársdekk frá Nokian fást hjá MAX1, þau hentar þeim sem búa ekki við mjög erfiðar vetraraðstæður en þurfa hluta ársins á grófari dekkjum að halda og vilja losna við umfelgun á vorin og haustin. Nokian heilsársdekk eru í raun vetrardekk en þau eru gerð fyrir mildari vetraraðstæður. Gúmmíblandan er hönnuð til að virka vel við meiri hitasveiflur, þ.e. hitastig frá -20°C til +20°C. Þetta þýðir að virkni heilsársdekkjanna er mjög góð allt árið um kring í þéttbýli við íslenskar aðstæður og hafa þau t.d. betra gripi í bleytu en vetrardekk við +5°C. Heilsársdekk slitna því minna en hefðbundin vetrardekk við hærra hitastig þegar götur eru auðar.

Aðrir sölustaðir

Nokian gæðadekk fást hjá Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5, 600 Akureyri.

Við sendum dekk út á land, hvert á land sem er.

Flutningskostnaður per dekk er: 1.500 kr. með virðisaukaskatti.

Hvernig finn ég verð og réttu Nokian heilsársdekkin undir bílinn minn?

Réttu Nokian heilsársdekkin undir bílinn og verð þeirra finnur þú hér efst á síðunni. Þú getur leitað eftir stærð dekkjanna með því að nota leitarvélina eða fundið réttu heilsársdekkin eftir flokki bíls:

Heilsársdekk ásamt harðkornadekkjum og nagladekkjum fylla öflugan flokk vetrardekka frá Nokian.

MAX1 býður greiðsludreifingu af dekkjum.

Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres í 1 ár

Hakka ábyrgð® veitir viðskiptavinum sem kaupa ný Nokian Hakkapeliitta dekk hjá MAX1 nýtt samsvarandi dekk án endurgjalds ef upprunalega dekkið verður fyrir óhappi. Ef hægt er að gera við dekkið á öruggan hátt verður því ekki skipt út. Viðgerðarkostnaður er ekki innifalin í Hakka Ábyrgð®. Dekkin sem falla undir Hakka Ábyrgð® eru merkt á vefnum í vefverslun.

Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres gildir í 1 ár frá kaupdegi og er tengd tilteknum bíl.

Hafðu samband

Hafðu samband við okkur með því að senda okkur tölvupóst. Til þess að flýta fyrir afgreiðslu er mikilvægt að eftirfarandi upplýsingar komi fram í póstinum:

  • Hvað getum við gert fyrir þig? (sendu okkur greinagóða lýsingu á fyrirspurninni)
  • Viðhengi ef það á við
  • Upplýsingar um þig: Nafn, símanúmer, bílnúmer, kennitala kaupanda

Við munum svara þér eins fljótt og kostur er og eigi síðar en kl. 17 virka daga.