Opið til 17:00 í dagBíldshöfði 5aJafnasel 6Dalshraun 5

Um dekk

Sumardekk

Sumardekk frá Nokian á allar gerðir bíla hjá MAX1 Bílavaktinni. Gæða sumardekk á góðu verði. Komdu núna.

Sumardekk

8 gerðir passa · 8 til á lager núna

Sumardekk frá Nokian

Sumardekk frá hinum heimsþekkta finnska dekkjaframleiðanda Nokian fást hjá MAX1 Bílavaktinni. Nokian sumardekkin eru sérstaklega hönnuð til að gefa gott grip við breytilegar aðstæður, m.a. í bleytu. Dekkin hrinda vel frá sér vatni sem vill safnast fyrir í hjólförum vega og draga því úr hættu á að bíllinn fljóti.

Aðrir sölustaðir

Nokian gæðadekk fást hjá Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5, 600 Akureyri.

Við sendum dekk út á land, hvert á land sem er.

Flutningskostnaður per dekk er: 1.500 kr. með virðisaukaskatti.

Slitmerking (Driving Safety Indicator-DSI) er einstök hönnun sem aðeins Nokian býður upp. Talnaruna á akstursfleti dekksins segir til um mynstursdýpt á hverjum tíma. Samhliða sliti á dekki styttist talnarunan og segir þannig auðveldlega til um ástand dekksins. Um leið og síðasta talan er horfin er dekkið ekki lengur öruggt til aksturs.

Hvernig finn ég réttu Nokian sumardekkin á bílinn minn?

Réttu sumardekkin undir bílinn og verð þeirra finnur þú hér efst á síðunni. Þú getur leitað eftir stærð dekkjanna eða fundið réttu sumardekkin eftir flokki bíls:

MAX1 býður greiðsludreifingu af dekkjum.

Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres í 1 ár

Hakka ábyrgð® veitir viðskiptavinum sem kaupa ný Nokian Hakkapeliitta dekk hjá MAX1 nýtt samsvarandi dekk án endurgjalds ef upprunalega dekkið verður fyrir óhappi. Ef hægt er að gera við dekkið á öruggan hátt verður því ekki skipt út. Viðgerðarkostnaður er ekki innifalin í Hakka Ábyrgð®. Dekkin sem falla undir Hakka Ábyrgð® eru merkt á vefnum í vefverslun.

Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres gildir í 1 ár frá kaupdegi og er tengd tilteknum bíl.

Hafðu samband

Hafðu samband við okkur með því að senda okkur tölvupóst. Til þess að flýta fyrir afgreiðslu er mikilvægt að eftirfarandi upplýsingar komi fram í póstinum:

  • Hvað getum við gert fyrir þig? (sendu okkur greinagóða lýsingu á fyrirspurninni)
  • Viðhengi ef það á við
  • Upplýsingar um þig: Nafn, símanúmer, bílnúmer, kennitala kaupanda

Við munum svara þér eins fljótt og kostur er og eigi síðar en kl. 17 virka daga.