Nokian Snowproof 2 er vetrardekk sem hentar einnig sem heilsársdekk, líka fyrir rafbíla og tvinnbíla. Það veitir frábært grip í snjó, krapa og bleytu og er sérstaklega þróað fyrir vetrarfærð á evrópskum vegum.
Dekkið hefur góða eiginleika á þurrum vegum og í mikilli bleytu. Það er gert fyrir hitastig frá −20° til +20° og ræður því við íslenskt veðurfar allt árið.

Alpine Sense Grip 2.0 tæknin veitir áreiðanlegt grip í snjó, krapa og bleytu. Mynstrið var hannað með það að leiðarljósi að losa vatn hratt og örugglega undan dekkinu.


Eiginleikar dekksins minnka eldsneytiseyðslu og draga úr losun.





