Nokian Snowproof 2 SUV er vetrardekk sem hentar vel sem heilsársdekk, líka fyrir rafbíla og tvinnbíla. Það hefur frábært grip og gríðarsterka Aramid hliðarstyrkingu.
Dekkið hefur góða eiginleika á þurrum vegum og í mikilli bleytu. Það er gert fyrir hitastig frá −20° til +20° og ræður því við íslenskt veðurfar allt árið.
- Framúrskarandi grip í snjó
- Frábært grip á blautum vegum
- Meiri stöðugleiki
- Aramid hliðarstyrking





