Opið til 17:00 í dagBíldshöfði 5aJafnasel 6Dalshraun 5

Umfelgun

Umfelgun og dekkjaskipti

Ódýr og snögg umfelgun á dekkjaverkstæðum MAX1 Bílavaktarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Komdu núna.

Á þessari síðu
  1. Umfelgun er ódýr og snör afgreiðsla
  2. Nokian gæðadekk
  3. Verð á umfelgun og dekkjaskiptum
  4. Umfelgun á höfuðborgarsvæðinu
  5. Aðvörun vegna loftþrýstings
  6. Hafðu samband

Umfelgun er ódýr og snör afgreiðsla

Við umfelgum bílinn á meðan þú hefur það huggulegt í notalegri biðstofu, kíkir í blöðin og færð þér kaffi. Það er ágætt að hafa í huga að oft myndast biðraðir á vorin og haustin og við hvetjum því bíleigendur til að forðast biðraðir og koma tímanlega með bílinn í umfelgun.

Dekkjaskipti eða umfelgun er aðgerð sem bíleigendur þurfa alla jafna að huga að tvisvar á ári. MAX1 Bílavaktin býður dekkjaskipti á hagstæðu verði fyrir alla bíleigendur. Það sparar tíma að klára dekkjaskiptin áður en örtröðin hefst, bæði á vorin og haustin. Verðskráin er neðar á síðunni.

Hjá MAX1 starfar vant fólk sem nota toppgræjur til umfelgunar. Þau sjá um dekkjaskipti fyrir alla fólksbíla, jepplinga, jeppa og sendibíla á dekkjaverkstæðum fyrirtækisins, hvort sem þú ekur um á stálfelgum eða álfelgum.

Til viðbótar við hagstætt verð á umfelgun er jafnvægisstilling að sjálfsögðu innifalin í þjónustunni, enda er mikilvægt að bíllinn sé þýður í akstri eftir dekkjaskipti og titri ekki í stýri. Við leggjum áherslu á faglega umfelgunarþjónustu í öllu okkar starfi.

Hámarkaðu endingu dekkja – með einföldum hætti

Til að tryggja jafnt slit og hámarka líftíma dekkja er mælt með að skipta reglulega um staðsetningu þeirra – á um 10.000 km fresti. Það þýðir að færa framdekk á afturás og afturdekk á framás, þar sem framdekk slitna oft hraðar. Við slíka yfirferð ætti einnig að jafnvægisstilla öll dekkin. Þetta stuðlar að betri öryggi, meiri akstursánægju og minni dekkjakostnaði til lengri tíma.

Eitt skemmt dekk? Passaðu að hin séu í lagi líka

Ef eitt dekk á drifás bílsins (t.d. framan eða aftan) skemmist, er mikilvægt að hitt dekkið á sama ás sé af sömu stærð og ekki mikið meira slitiði. Misstór eða mjög misslitin dekk geta haft neikvæð áhrif á stöðugleika, fjöðrun og jafnvel drifbúnað. Því er oftast mælt með að skipta um bæði dekk á sama ás ef annað er skemmt eða mjög slitið.

Ef of lítið loft er í dekkjum eykur það slit þeirra. Þú getur kíkt við á MAX1 eða farið á næstu bensínstöð og dælt lofti í dekkin. Þú finnur oftast upplýsingar um réttan loftþrýsting fyrir dekkin á bílnum þínum í hurðafalsi bílstjórahurðar.

Nagli í dekki

Ef nagli er í dekkinu er mikilvægt að láta lagað dekkið hið fyrsta eða skipta um ef ekki er hægt að laga. Oftast geta dekkjaverkstæði lagað gat eftir nagla. Ef nagli er í dekkinu en það lekur ekki loft eða lekur hægt og nægt loft er í dekkinu þá er óhætt að keyra á næsta dekkjaverkstæði. Ef hins vegar loftið er orðið mjög lítið eða það lekur hratt úr dekkinu þá er ekki óhætt að keyra. Þá er einfaldast að skipta um dekk ef varadekk er til staðar en ef ekki þá taka dekkið og felguna undan bílnum og fara með á dekkjaverkstæði.

Smelltu hér til að fá upplýsingar um tímabil nagladekkja.

👉 Þarft þú á umfelgun að halda eða færa dekk á milli drifása?

Bókaðu tíma í umfelgun hjá MAX1 – fljót, einföld og fagleg þjónusta á sanngjörnu verði.

Nokian gæðadekk

Nokian eru gæðadekk sem uppfylla gæðakröfur ESB. Þú getur treyst á Nokian dekk við erfiðustu aðstæður. Keyrðu á öryggi. Kauptu Nokian gæðadekk á frábæru verði.

>> KAUPA NOKIAN DEKK

Verð á umfelgun og dekkjaskiptum

Verð eftir felgustærð og bílgerð er í verðskrá vinnu. Kaupir þú fjögur ný dekk hjá MAX1 reiknast afsláttur af umfelguninni sjálfkrafa í körfunni.

Umfelgun á höfuðborgarsvæðinu

Það er stutt að fara í umfelgun því dekkjaverkstæði MAX1 eru víða á höfuðborgarsvæðinu. Okkar menn eru snarir í snúningum. Skoðaðu hvenær er opið hjá okkur og bókaðu tíma.

Bílar nútímans eru búnir sífellt flóknari búnaði sem tryggir öryggi, eykur sparneytni, dregur úr mengun og þar fram eftir götunum. Í dag eru margir bílar, m.a. þeir sem eru framleiddir í Bandaríkjunum, með búnað sem fylgist með og vaktar loftþrýsting í dekkjum bílsins. Þetta er mikilvægur öryggisbúnaður og því er áríðandi að umgangast hann af varúð þegar skipt er um dekk.

Nokkuð ber á því að viðskiptavinir dekkjaverkstæða verði fyrir óþægindum vegna rangra vinnubragða við umfelgun og stundum hefur þessi búnaður orðið fyrir skemmdum af þessum sökum. MAX1 Bílavaktin hefur farið sérstaklega yfir þessi mál með starfsmönnum sínum og vill hvetja bíleigendur til að gæta að þessum búnaði þegar skipt er um dekk. Loftþrýstingsnemar eru staðsettir innan á hverri felgu og fylgist búnaðurinn með loftþrýstingi dekkjanna og sendir skilaboð í mælaborð ef hann er ekki réttur. Nauðsynlegt er að fara eftir verklagi framleiðenda við umfelgun og gæta fyllstu varúðar.

Aðvörun vegna loftþrýstings

Gaumljós sem tekur við skilaboðum er oftast appelsínugult að lit og það kviknar ávallt við ræsingu bílsins. Ljósið logar í stuttan tíma eftir ræsingu en hverfur ef allt er með felldu. Hverfi gaumljósið ekki að þeim tíma liðnum (eða ef það birtist fyrirvaralaust) skal fara eftir leiðbeiningum í handbók bílsins. Dugi þær ekki er nauðsynlegt að athuga skynjara á felgunum. Í sumum tilvikum kann að vera nauðsynlegt að láta núllstilla vöktunarkerfið með sérstökum búnaði hjá þjónustuverkstæði viðeigandi bílaumboðs.

Hafðu samband

Hafðu samband við okkur með því að senda okkur tölvupóst. Til þess að flýta fyrir afgreiðslu er mikilvægt að eftirfarandi upplýsingar komi fram í póstinum:

  • Hvað getum við gert fyrir þig? (sendu okkur greinagóða lýsingu á fyrirspurninni)
  • Viðhengi ef það á við
  • Upplýsingar um þig: Nafn, símanúmer, bílnúmer, kennitala kaupanda

Við munum svara þér eins fljótt og kostur er og eigi síðar en kl. 17 virka daga.