Margir spyrja sig hvaða tímabil gildi fyrir vetrardekk? Svarið við því er að ekkert sérstakt tímabil gildir fyrir vetrardekk, heilsársdekk eða harðkornadekk og má keyra á þeim allan ársins hring.
Hinsvegar er rétt að benda á að vetrardekk eru hönnuð til aksturs í kulda og snjó og þau slitna hraðar við akstur við hærra hitastig á auðum götum. Því er rétt að spara vetrardekkin á sumrin svo þau séu í góðu lagi þegar á þarf að halda að vetri til.
Samkvæmt lögum eru þó takmörk fyrir notkun nagladekkja og tímabilið fyrir nagladekk er því vel skilgreint og afmarkað. Það er því þjóðráð fyrir þá sem ætla að aka á vetrardekkjum, heilsársdekkjum eða harðkornadekkjum yfir vetrartímann að setja dekkin undir tímanlega og spara sér bæði tíma og fyrirhöfn.
Tímabil nagladekkja
Samkvæmt reglugerð um gerð og búnað ökutækja má aka á negldum hjólbörðum frá 1. nóvember til 14. apríl. Frá 15. apríl til 31. október er óheimilt að nota nagladekk nema þess sé þörf vegna akstursaðstæðna.
Lögreglan getur sektað þá sem aka á nagladekkjum utan tímabilsins. Það borgar sig því að bóka umfelgun tímanlega, bæði á haustin og vorin.
Vakin er athygli á því að samkvæmt lögum ber ökumaður ábyrgð á því að aka um á dekkjum sem eru í samræmi við aðstæður hverju sinni. MAX1 Bílavaktin býður úrval vetrardekkja, heilsársdekkja, harðkornadekkja og sumardekkja frá Nokian.
