Hjólhalli (Camber)
Hversu mikið hjólið hallar inn eða út séð framan á bílinn. Rangur halli veldur því að dekkið slitnar meira öðrum megin.
Ný þjónusta á Bíldshöfða 5a og Jafnaseli 6
Við mælum afstöðu hjólanna og stillum þau eftir forskrift framleiðanda — svo bíllinn aki beint og dekkin endist lengur.
Í hjólastillingu er afstaða hjólanna mæld nákvæmlega og borin saman við gildi framleiðanda. Þetta eru atriðin sem skipta máli.
Hversu mikið hjólið hallar inn eða út séð framan á bílinn. Rangur halli veldur því að dekkið slitnar meira öðrum megin.
Hvort hjólin vísa inn á við eða út á við miðað við akstursstefnu. Skekkja hér er algengasta orsök hraðs dekkjaslits.
Halli stýrisássins fram eða aftur séð frá hlið. Hefur áhrif á stöðugleika á ferð og hvernig stýrið réttir sig af eftir beygju.
Stefna afturhjólanna miðað við miðlínu bílsins. Ef hún er skökk ekur bíllinn örlítið á ská og leitar til hliðar.
Að stýrið standi beint þegar bíllinn ekur beint áfram. Við stillum það í lokin svo allt sé í jafnvægi.
Þurfi ekki að stilla bílinn tekur heimsóknin örfáar mínútur. Við bókum því stundum mjög þétt. Komi til þess að stilla þurfi bílinn þinn eða mögulega bílinn á undan getur heimsókn dregist upp í allt að 90 mínútur.
Fyrir sendibíla, stærri pallbíla og þyngri ökutæki bendir MAX1 á hjólastillingu hjá Veltir Xpress á Hádegismóum 8 sem hjólastillir flestar gerðir stærri bíla.