Otwarte dziś do 17:00Bíldshöfði 5aJafnasel 6Dalshraun 5

O MAX1

Dalshraun verkstæði

Verkstæði MAX1 Bílavaktarinnar við Dalshraun 5 í Hafnarfirði. Dekk, umfelgun, smurning, bremsur og önnur bílaþjónusta. Bókaðu tíma á netinu.

Na tej stronie
  1. Verkstæði MAX1 við Dalshraun
  2. Þjónustan á staðnum
  3. Stærri viðgerðir
  4. Bílastæði
  5. Opnunartími og bílar utan opnunartíma
  6. Viðurkenndur söluaðili Nokian Tyres

Ta strona nie jest jeszcze dostępna po polsku. Poniższy tekst jest po islandzku.

Verkstæði MAX1 við Dalshraun

Verkstæði MAX1 í Hafnarfirði er við Dalshraun 5. Á sama svæði er Frumherji með skoðunarstöð. MAX1 Bílavaktin opnaði verkstæði í Hafnarfirði þann 20. október 2009 og hafa Hafnfirðingar tekið þjónustunni opnum örmum. Stöðin þjónar Hafnarfirði, Garðabæ, Álftanesi og hluta Kópavogs.

Áður en þú kemur

Þú getur flett upp dekkjastærð eftir bílnúmeri, borið saman stærðir í dekkjareiknivélinni og séð lausa tíma á þessari stöð beint í bókuninni.

Þjónustan á staðnum

Verkstæði MAX1 í Hafnarfirði býður upp á alla þjónustuþætti MAX1, en þeir eru: Dekk, umfelgun, rafgeymar, smurning, bremsur, demparar, bílaperur, rúðuþurrkur, rúðuvökva og önnur bílaþjónusta, m.a. smærri viðvik.

Stærri viðgerðir

Ef þörf er á umfangsmeiri bílaviðgerð sem liggur utan verksviðs MAX1 er Vélaland bílaverkstæði staðsett í sama húsi, en Vélaland sér um allar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.

Bílastæði

Komir þú með bílinn utan opnunartíma skaltu aðeins leggja í stæðin sem merkt eru appelsínugul. Sjá mynd af bílastæðunum við Dalshraun 5.

Opnunartími og bílar utan opnunartíma

Um opnunartíma MAX1 Bílavaktarinnar má lesa hér. Hægt er að koma með bíl til viðgerðar utan opnunartíma. Þá er tími bókaður á netinu, lýsing á viðgerð sett þar inn, bíl lagt fyrir utan verkstæðið og lykill settur í lúgu við inngang.

Viðurkenndur söluaðili Nokian Tyres

MAX1 Bílavaktin er viðurkenndur söluaðili Nokian Tyres á Íslandi. Sendum um allt land. Smelltu hér til að skoða aðra viðurkennda söluaðila.