Verkstæðisbúnaður
Hofmann
Hofmann hefur smíðað búnað fyrir dekkja- og bílaverkstæði í meira en 90 ár: jafnvægisstillivélar, dekkjavélar, hjólastillingartæki og bílalyftur.
Frá 1931
Hofmann var stofnað í Darmstadt í Þýskalandi árið 1931 og hefur síðan þá framleitt búnað fyrir bílaverkstæði. Höfuðstöðvarnar eru nú í Worms í Þýskalandi.
Hvar er Hofmann framleitt?
Búnaðurinn er hannaður og framleiddur á Ítalíu. Framleiðandinn lýsir því sjálfur svo að Hofmann sameini þýska verkfræðihefð og ítalska framleiðslureynslu.
Er Hofmann gæðavara?
Hofmann er búnaður fyrir atvinnuverkstæði, ekki heimilisbílskúrinn. Hann er gerður fyrir nákvæmni, afköst og langa endingu í daglegri notkun. Fólksbíla-, vörubíla- og sérverkstæði um allan heim nota búnaðinn, og framleiðandinn styður þau með neti samstarfsaðila og eigin þjálfunarsetri.
Vörulínurnar
Vantar þig upplýsingar um vörur?
Fylltu út fyrirspurnarformið og við svörum þér, eða skoðaðu Hofmann-vörurnar í vefversluninni með verði og lagerstöðu.
