Opið til 17:00 í dagBíldshöfði 5aJafnasel 6Dalshraun 5

Bætiefni

Bell Add bætiefni

Bell Add er danskt vörumerki sem sérhæfir sig í efnum sem halda vélinni hreinni að innan. Bætiefnið fer í tankinn við áfyllingu og vinnur á útfellingum í eldsneytiskerfinu á meðan þú keyrir.

Finna bætiefni

Finndu rétta bætiefnið fyrir bílinn þinn

Við lesum eldsneytið úr bílaskránni okkar. Stemmi það ekki velurðu sjálf/ur hér að neðan.


Á eitthvað af þessu við? (má sleppa)

Hvað gerir Bell Add í vélinni?

Með tímanum safnast sótútfellingar á eldsneytiskerfið og vélina. Bell Add hreinsar og ver þessa hluta.

  1. SpíssarHreinsar spíssana svo eldsneytið úðist jafnt inn í brunahólfið.
  2. VentlarVinnur á hörðum sótútfellingum sem safnast á ventlana.
  3. BrunahólfMinni útfellingar skila betri þjöppun og hreinni bruna.
  4. StimpilhringirBell Add 3 og 3+ eru sérefni fyrir smurkerfið og stimpilhringina.
  5. Tankur og eldsneytiskerfiBindur vatn í tankinum og ver kerfið gegn ryði.

Betri þjöppun, minni eyðsla, meira vélarafl og lengri líftími vélar — samkvæmt framleiðanda, við reglulega notkun.

Um Bell Add

Bell Add er danskt fyrirtæki með meira en 30 ára reynslu af hreinni vélatækni. Það rekur eigin rannsóknar- og þróunarstofu og framleiðir allar vörurnar í Danmörku.

Efnin og hreinsiaðferðirnar eru þróaðar í samstarfi við olíufélög, tækniskóla og meira en 2.000 verkstæði í Danmörku og á Norðurlöndum. Framleiðandinn setur sér það markmið að vörurnar gangi lengra en lög krefjast í umhverfismálum, og gerir sömu kröfur til birgja sinna.

Vörulínurnar

BætiefniFara í tankinn við áfyllingu og halda eldsneytiskerfi bensín-, dísil- og tvinnbíla hreinu.
ServiceRensHreinsun á vélinni að innan í tengslum við reglulega þjónustu.
SérhreinsarMarkviss hreinsun þegar vandamálið er afmarkað — túrbína, sótsía eða loftræsting.
Heavy DutyEfni fyrir vörubíla, vinnuvélar og annan þungaflutning.

Svona notarðu Bell Add

  1. Veldu rétta efniðEftir eldsneyti — bensín, dísel eða tvinn — og hvort bíllinn er mest í innanbæjarakstri.
  2. Helltu í tankinnSettu bætiefnið í tankinn þegar þú tekur eldsneyti. Bensínbætiefnið: 50 ml á hverja 60 lítra, svo 500 ml duga í um 600 lítra.
  3. Notaðu reglulegaFramleiðandinn mælir með bætiefninu við hverja áfyllingu til að halda kerfinu hreinu.

Vantar þig upplýsingar um vörur?

Fylltu út fyrirspurnarformið og við svörum þér, eða skoðaðu Bell Add-vörurnar í vefversluninni með verði og lagerstöðu.

Senda fyrirspurnSkoða vefverslun