Opið til 17:00 í dagBíldshöfði 5aJafnasel 6Dalshraun 5

Um dekk

Dekkjastærðir

Hvernig finn ég réttu dekkin undir bílinn minn? Lestu allt um dekkjastærðir á vef MAX1 Bílavaktarinnar.

Á þessari síðu
  1. Hvað tákna merkingarnar á hjólbarðanum?
  2. Burðarþol og hraðamerkingar
  3. Burðarþol
  4. Hraðamerkingar

Dekkjastærðir eru mikilvægar þegar valin eru rétt dekk undir bílinn. Öll viðurkennd dekk fylgja ákveðnum staðli þegar kemur að merkingum á stærðum dekkja, burðargetu, hraðamörkum og fleiri þáttum.

Hægt er að finna dekkjastærð með því að slá bílnúmer inn í dekkjaleitarvél í vefverslun á þessum vef. Ef stærðin finnst ekki þar þá er hægt er að lesa stærð dekkjanna á miða sem er límdur á hurðarstaf bilstjórahurðar en dekkjastærðin þar er sú sama og bíllinn kom á þegar hann var nýskráður. Einnig er hægt að lesa dekkjastærðina á dekkinu sjálfu og hér fyrir neðan er útskýrt hvað táknmálið þýðir. Ef dekkin undir bílnum eru ekki af sömu stærð og miðinn á hurðarstafnum segir til um þá hefur verið skipt um dekk á bílnum og önnur stærð sett undir. Það getur verið eðlilegt þar sem oft gefa framleiðendur upp allt að þrjár mismunandi stærðir sem passa undir bílinn. Dekkjastærðir er líka hægt að fletta upp í ökutækjaskrá Samgöngustofu.

Um gæðamerkingu ESB á dekkjum má hins vegar lesa hér.

Hvað tákna merkingarnar á hjólbarðanum?

Á hliðum hjólbarða eru skráðar upplýsingar um framleiðanda, eiginleika og stærðir dekksins

Merking á dekkjum

Burðarþol og hraðamerkingar

Burðarþolstalan (LI) segir hve mikinn þunga hvert dekk má bera. Hraðamerkingin segir hve hratt dekkið er gert fyrir að fara. Bæði standa aftast í stærðinni á hlið dekksins: á dekki merktu 205/55 R16 94V má hvert dekk bera 670 kg og það er gert fyrir allt að 240 km/klst.

Burðarþol

LIkgLIkgLIkgLIkg
045703351402.50021019.000
146,2713451412.57521119.500
247,5723551422.65021220.000
348,7733651432.72521320.600
450743751442.80021421.200
551,5753871452.90021521.800
653764001463.00021622.400
754,5774121473.07521723.000
856784251483.15021823.600
958794371493.25021924.300
1060804501503.35022025.000
1161,5814621513.45022125.750
1263824751523.55022226.500
1365834871533.65022327.250
1467845001543.75022428.000
1569855151553.87522529.000
1671865301564.00022630.000
1773875451574.12522730.750
1875885601584.25022831.500
1977,5895801594.37522932.500
2080906001604.50023033.500
2182,5916151614.62023134.500
2285926301624.75023235.500
2387,5936501634.87023336.500
2490946701645.00023437.500
2592,5956901655.15023538.750
2695967101665.30023640.000
2797,5977301675.45023741.250
28100987501685.60023842.500
29103997751695.80023943.750
301061008001706.00024045.000
311091018251716.15024146.200
321121028501726.30024247.500
331151038751736.50024348.700
341181049001746.70024450.000
351211059251756.90024551.500
361251069501767.10024653.000
371281079751777.30024754.500
381321081.0001787.50024856.000
391361091.0301797.75024958.000
401401101.0601808.00025060.000
411451111.0901818.25025161.500
421501121.1201828.50025263.000
431551131.1501838.75025365.000
441601141.1801849.00025467.000
451651151.2151859.25025569.000
461701161.2501869.50025671.000
471751171.2851879.75025773.000
481801181.32018810.00025875.000
491851191.36018910.30025977.500
501901201.40019010.60026080.000
511951211.45019110.90026182.500
522001221.50019211.20026285.000
532061231.55019311.50026387.500
542121241.60019411.80026490.000
552181251.65019512.15026592.500
562241261.70019612.50026695.000
572301271.75019712.85026797.500
582361281.80019813.200268100.000
592431291.85019913.600269103.000
602501301.90020014.000270106.000
612571311.95020114.500271109.000
622651322.00020215.000272112.000
632721332.06020315.500273115.000
642801342.12020416.000274118.000
652901352.18020516.500275121.500
663001362.24020617.000276125.000
673071372.30020717.500277128.500
683151382.36020818.000278132.000
693251392.43020918.500279136.000

Hraðamerkingar

Merkingkm/klst.Merkingkm/klst.Merkingkm/klst.
A210E70R170
A315F80S180
A420G90T190
A525J100U200
A630K110H210
A735L120V240
A840M130W270
B50N140Y300
C60P150Zyfir 240
D65Q160

Nýju dekkin þurfa að hafa að minnsta kosti sama burðarþol og hraðamerkingu og bíllinn er skráður fyrir.

Ekki má setja hvaða dekkjastærð sem er undir bíl. Þegar bíll er skráður hér á landi eru ein eða fleiri dekkjastærðir skráðar á bílinn. Starfsmenn MAX1 eru boðnir og búnir að leiðbeina um rétta dekkjastærð undir bílinn þinn.

Lestu einnig um gæðamerkingu ESB á dekkjum sem innleidd var fyrir nokkrum árum hér á landi en gæðadekkin frá Nokian uppfylla þessar kröfur í einu og öllu.