Bætiefni
Bell Add bætiefni
Bell Add er danskt vörumerki sem sérhæfir sig í efnum sem halda vélinni hreinni að innan. Bætiefnið fer í tankinn við áfyllingu og vinnur á útfellingum í eldsneytiskerfinu á meðan þú keyrir.
Finndu rétta bætiefnið fyrir bílinn þinn
Hvað gerir Bell Add í vélinni?
Með tímanum safnast sótútfellingar á eldsneytiskerfið og vélina. Bell Add hreinsar og ver þessa hluta.
- SpíssarHreinsar spíssana svo eldsneytið úðist jafnt inn í brunahólfið.
- VentlarVinnur á hörðum sótútfellingum sem safnast á ventlana.
- BrunahólfMinni útfellingar skila betri þjöppun og hreinni bruna.
- StimpilhringirBell Add 3 og 3+ eru sérefni fyrir smurkerfið og stimpilhringina.
- Tankur og eldsneytiskerfiBindur vatn í tankinum og ver kerfið gegn ryði.
Betri þjöppun, minni eyðsla, meira vélarafl og lengri líftími vélar — samkvæmt framleiðanda, við reglulega notkun.
Um Bell Add
Bell Add er danskt fyrirtæki með meira en 30 ára reynslu af hreinni vélatækni. Það rekur eigin rannsóknar- og þróunarstofu og framleiðir allar vörurnar í Danmörku.
Efnin og hreinsiaðferðirnar eru þróaðar í samstarfi við olíufélög, tækniskóla og meira en 2.000 verkstæði í Danmörku og á Norðurlöndum. Framleiðandinn setur sér það markmið að vörurnar gangi lengra en lög krefjast í umhverfismálum, og gerir sömu kröfur til birgja sinna.
Vörulínurnar
Svona notarðu Bell Add
- Veldu rétta efniðEftir eldsneyti — bensín, dísel eða tvinn — og hvort bíllinn er mest í innanbæjarakstri.
- Helltu í tankinnSettu bætiefnið í tankinn þegar þú tekur eldsneyti. Bensínbætiefnið: 50 ml á hverja 60 lítra, svo 500 ml duga í um 600 lítra.
- Notaðu reglulegaFramleiðandinn mælir með bætiefninu við hverja áfyllingu til að halda kerfinu hreinu.
Vantar þig upplýsingar um vörur?
Fylltu út fyrirspurnarformið og við svörum þér, eða skoðaðu Bell Add-vörurnar í vefversluninni með verði og lagerstöðu.
