Opið til 17:00 í dagBíldshöfði 5aJafnasel 6Dalshraun 5

Smurning

Smurþjónusta

Ódýr og fljót smurþjónusta fyrir alla bíla hjá MAX1 Bílavaktinni. Komdu núna og láttu okkur smyrja bílinn. MAX1 Bílavaktin.

Á þessari síðu
  1. Pantaðu tíma á netinu
  2. Hafðu samband

Smurþjónusta með reglulegu millibili er afar mikilvæg fyrir vél bílsins. Að smyrja bílinn reglulega samkvæmt þjónustubók er ódýr og hagkvæm trygging fyrir lengri endingu bílvélarinnar. Auk endurnýjunar á smurolíu og smursíu skiptir MAX1 um loftsíu, eldsneytissíu og frjóagnasíu í inntaki miðstöðvar ef þess er þörf eða sé þess óskað.

Verð á vinnu við smurþjónustu. Sjá verðskrá vinnu.

Við notum eingöngu gæða­ varahluti og flytjum mikið inn beint frá traustum þýskum birgjum í samvinnu við Vélaland. Beinn innflutningur þýðir lægra verð án þess að slaka á gæðum.

Lestu um æskilega tíðni olíuskipta.

Pantaðu tíma á netinu

Hafðu það einfalt og þægilegt og hafðu bílinn í topp standi með því að panta tíma í smur á netinu.

Hafðu samband

Hafðu samband við okkur með því að senda okkur tölvupóst. Til þess að flýta fyrir afgreiðslu er mikilvægt að eftirfarandi upplýsingar komi fram í póstinum:

  • Hvað getum við gert fyrir þig? (sendu okkur greinagóða lýsingu á fyrirspurninni)
  • Viðhengi ef það á við
  • Upplýsingar um þig: Nafn, símanúmer, bílnúmer, kennitala kaupanda

Við munum svara þér eins fljótt og kostur er og eigi síðar en kl. 17 virka daga.