Opið til 17:00 í dagBíldshöfði 5aJafnasel 6Dalshraun 5

Ný þjónusta á Bíldshöfða 5a og Jafnaseli 6

Hjólastilling

Við mælum afstöðu hjólanna og stillum þau eftir forskrift framleiðanda — svo bíllinn aki beint og dekkin endist lengur.

  • Dekkin endast lengur
  • Minni eldsneytiseyðsla
  • Öruggari og stöðugri akstur

Skoðun með nýjum dekkjum frá okkur

Ókeypis

Hjólastilling ef hennar reynist þörf

18.900 kr.

Panta tíma

Hvað mælum við?

Í hjólastillingu er afstaða hjólanna mæld nákvæmlega og borin saman við gildi framleiðanda. Þetta eru atriðin sem skipta máli.

1

Hjólhalli (Camber)

Hversu mikið hjólið hallar inn eða út séð framan á bílinn. Rangur halli veldur því að dekkið slitnar meira öðrum megin.

2

Innskeifni / útskeifni (Toe)

Hvort hjólin vísa inn á við eða út á við miðað við akstursstefnu. Skekkja hér er algengasta orsök hraðs dekkjaslits.

3

Spindilhalli (Caster)

Halli stýrisássins fram eða aftur séð frá hlið. Hefur áhrif á stöðugleika á ferð og hvernig stýrið réttir sig af eftir beygju.

4

Akstursás (Thrust angle)

Stefna afturhjólanna miðað við miðlínu bílsins. Ef hún er skökk ekur bíllinn örlítið á ská og leitar til hliðar.

5

Stýrisstaða

Að stýrið standi beint þegar bíllinn ekur beint áfram. Við stillum það í lokin svo allt sé í jafnvægi.

AKSTURSSTEFNA12345
Stefna framhjólaAkstursásMiðlína bílsins

Þarf bíllinn hjólastillingu?

Bíllinn leitar til hliðar
Stýrið er skakkt þegar ekið er beint
Ójafnt eða hratt dekkjaslit
Eftir högg í holu eða á kantstein

Það borgar sig

  • Dekkin endast lengur
  • Minni eldsneytiseyðsla
  • Öruggari og stöðugri akstur

Hvað tekur þetta langan tíma?

Þurfi ekki að stilla bílinn tekur heimsóknin örfáar mínútur. Við bókum því stundum mjög þétt. Komi til þess að stilla þurfi bílinn þinn eða mögulega bílinn á undan getur heimsókn dregist upp í allt að 90 mínútur.

Sendibílar og stærri ökutæki

Fyrir sendibíla, stærri pallbíla og þyngri ökutæki bendir MAX1 á hjólastillingu hjá Veltir Xpress á Hádegismóum 8 sem hjólastillir flestar gerðir stærri bíla.

Frí hjólastillingarskoðun fylgir dekkjunum

Kauptu dekk hjá okkur og hjólastillingarskoðunin fylgir, þér að kostnaðarlausu. Þú bókar hana um leið og þú klárar pöntunina.

  • ✔ Þú veist hvort dekkin séu að slitna rétt.
  • ✔ Þú veist að vel sé farið með dekkin sem þú varst að kaupa.
  • ✔ Hámarksending dekkjanna er tryggð.
Velja dekkPanta tíma