Nokian Hakkapeliitta R5 SUV er harðkorna vetrardekk fyrir jeppa — góður kostur í stað nagladekkja, sem sameinar óaðfinnanlegt grip og akstursþægindi. Það fæst einnig fyrir fólksbíla (R5) og rafbíla og tvinnbíla (R5 EV).
Dekkið býður áður óþekkt grip á ís, þægindi og aksturseiginleika sem voru þróaðir fyrir norðlægar slóðir, og byggir á ströngum prófunum og ítarlegum rannsóknum.
- Framúrskarandi grip og jafnvægi í akstri
- Hljóðlátt
- Vistvænt og orkusparandi
Óaðfinnanlegt grip með Nokian Hakkapeliitta R5 SUV
Mynstrið hefur verið endurhannað. Nýtt Double Block Grip veitir óaðfinnanlegt grip í vetrarhörkum: stíf röð slitlagsblokka byrjar í miðju dekksins, klofnar í tvennt og liggur út að axlarsvæðunum. Slitlagsblokkirnar eru 40% fleiri en á forveranum og snertiflöturinn 4% stærri, sem skilar betra gripi í hálku.

Nokian Hakkapeliitta R5 SUV er hljóðlátt vetrardekk
Hávaði frá dekkjum dregur úr akstursánægju og þægindum; hljóðlátari dekk gera ferðalagið þægilegra og minnka þreytu farþega. Ný Silent Touch hönnun mynstursins skilar stöðugum, mjúkum og hljóðlátum akstri.

Harðkornadekk með Arctic Grip kristöllum
Arctic Grip kristöllum er blandað í slitlagsblönduna. Þeir virka eins og innbyggðir pinnar og mynda skarpar, sterkar gripbrúnir í gúmmíinu. Þegar dekkið slitnar koma kristallarnir fram og viðhalda gripinu.
Nýja mynstrið, Arctic Grip kristallarnir og Double Block Grip auka saman öryggi og þægindi í vetrarakstri. Viðnám dekksins hefur einnig lækkað, sem minnkar eldsneytiskostnað.

Nokian Aramid hliðarstyrking bjargar mannslífum
Aramid hliðarstyrkingin eykur endingu dekksins og verndar það í óvæntum aðstæðum. Hliðarnar eru úr einstaklega endingargóðri blöndu með gríðarsterkum aramíðtrefjum, svo þær þola betur utanaðkomandi álag — til dæmis holur í götum borgarinnar.






