Nokian Hakkapeliitta LT3 er óneglt M+S hágæða jeppadekk fyrir vetur og sumar. Fyrsta flokks öryggi, styrkur og stöðugleiki einkenna það.
Dekkið veitir framúrskarandi grip í vetrarakstri og almennum akstri, góðan akstursstöðugleika og er sterkbyggt. Það er hannað fyrir krefjandi vetrarnotkun og er áreiðanlegt og öruggt á snjóþöktum vegum. Dýpri rásir bæta sjálfhreinsun mynstursins.
Sérstyrking dekkja
Myndirnar sýna muninn á venjulegu dekki og hliðum Nokian-dekks sem eru sérstyrktar með aramíði. Aramíð er flokkur hitaþolinna og sterkra gervitrefja sem eru meðal annars notaðar í flugvélar, báta og skotheld vesti.


Nokian Aramid hliðarstyrking bjargar mannslífum
Aramid hliðarstyrkingin eykur endingu dekksins og verndar það í óvæntum aðstæðum. Hliðarnar eru úr einstaklega endingargóðri blöndu með gríðarsterkum aramíðtrefjum, svo þær þola betur utanaðkomandi álag.





