Nokian Hakkapeliitta LT3 er neglt hágæða jeppadekk fyrir vetraraðstæður. Fyrsta flokks öryggi, styrkur og stöðugleiki einkenna það.
Dekkið veitir framúrskarandi vetrargrip og akstursstöðugleika og er sterkbyggt. Það er hannað fyrir krefjandi vetrarnotkun og er áreiðanlegt og öruggt á snjóþöktum vegum. Dýpri rásir bæta sjálfhreinsun mynstursins. Nýir ryðfríir naglar eru lengri en forverarnir og endast betur. Ný naglatækni virkar betur í hliðar- og framskriði og styttir hemlunarvegalengd á ís.

Lengri naglar úr ryðfríu stáli.

Styttri hemlunarvegalengd á ís með nýrri naglatækni — Arctic Stud Concept.

Sérstyrking dekkja
Myndirnar sýna muninn á venjulegu dekki og hliðum Nokian-dekks sem eru sérstyrktar með aramíði. Aramíð er flokkur hitaþolinna og sterkra gervitrefja sem eru meðal annars notaðar í flugvélar, báta og skotheld vesti.


Nokian Aramid hliðarstyrking bjargar mannslífum
Aramid hliðarstyrkingin eykur endingu dekksins og verndar það í óvæntum aðstæðum. Hliðarnar eru úr einstaklega endingargóðri blöndu með gríðarsterkum aramíðtrefjum, svo þær þola betur utanaðkomandi álag.






