Nokian Hakkapeliitta C4 nagladekkið er sendibíladekk sem gerir atvinnubílstjórum lífið auðveldara. Það veitir frábært grip í vetrarfærð og er úr gúmmíblöndu sem endist vel, enda hugsað fyrir mikinn akstur.
Ferkantaðir naglar fyrir öflugt grip
Naglarnir voru prófaðir í prófunaraðstöðu Nokian í Ivalo í Finnlandi. Þeir eru ferkantaðir til að hámarka snertiflötinn og veita, ásamt mynstrinu, öflugt grip við erfiðar vetraraðstæður.


Rákirnar í mynstrinu eru hannaðar til að hreinsa snjó og bleytu vel undan dekkinu.

Mynstur sem eykur vetraröryggi
Í mynstrinu eru tölur og snjókornstákn sem sýna mynsturdýptina. Tölurnar segja hve margir millimetrar eru eftir og hverfa ein af annarri eftir því sem dekkið slitnar. Þegar snjókornið er horfið er kominn tími til að skipta um dekk.
Nokian Aramid hliðarstyrking bjargar mannslífum
Aramid hliðarstyrkingin eykur endingu dekksins og verndar það í óvæntum aðstæðum. Hliðarnar eru úr einstaklega endingargóðri blöndu með gríðarsterkum aramíðtrefjum, svo þær þola betur utanaðkomandi álag — til dæmis holur í götum borgarinnar.






