Opið til 17:00 í dagBíldshöfði 5aJafnasel 6Dalshraun 5

Rúðuþurrkur og perur

Þurrkublöð

Trico þurrkublöð hjá MAX1 Bílavaktinni passa á alla bíla og eru ódýr og góð. Frí ásetning. Komdu núna.

Á þessari síðu
  1. Rúðuþurrkur
  2. Pantaðu tíma á netinu
  3. Léleg þurrkublöð - ástæður
  4. Hvað kosta þurrkublöð?

Rúðuþurrkur

Þurrkublöð eru mikilvæg hvað umferðaröryggi varðar og tjón á framrúðu getur hæglega orðið mikið ef notuð eru ónýt þurrkublöð. Þegar þurrkublöð slitna byrja þau að hreinsa óhreinindi illa af rúðunni og rispa framrúðuna. Þetta veldur skertu útsýni fyrir ökumanninn og skapar hættu í umferðinni.

Hugsaðu um öryggið og vertu ábyrgur ökumaður. Láttu okkur hjá MAX1 kanna ástand þurrkublaða, þér að kostnaðarlausu. Ef þú kaupir rúðuþurrkurnar hjá okkur setjum við þurrkublöðin á bílinn án endurgjalds.

Góð þurrkublöð eru mikilvæg til að hreinsa framrúðu bílsins. Á veturna slettist á rúðuna margþætt efnablanda, t.d. þegar salt, ryk og tjara blandast regnvatni, og á sumrin festast að auki flugur á framrúðunni. Þegar þurrkublöðin verða léleg missa þau hæfileikann til að hreinsa þessi óhreinindi af framrúðunni. Þá vilja óhreinindin frekar dreifast um rúðuflötinn sem dregur úr útsýni og minnkar öryggi við akstur. Um leið eykst hættan á að þurrkublöðin rispi framrúðuna sem dregur enn úr útsýni og getur orðið kostnaðarsamt ef skipta þarf um framrúðu. Léleg þurrkublöð auka líka notkun á rúðupissi því tilhneigingin er að sprauta oftar og meira til að leysa málið.

Pantaðu tíma á netinu

Hafðu það einfalt og þægilegt og hafðu bílinn í topp standi með því að panta tíma á netinu.

Léleg þurrkublöð - ástæður

Ástæður fyrir lélegum þurrkublöðum geta auðvitað verið margar. Þau geta hafa verið of lengi í notkun, blöðin sem keypt voru síðast ekki nægilega góð eða kannski voru rúðuþurrkurnar látnar vinna á mjög óhreinni eða ísaðri framrúðu. Hægt er að lengja líftíma þurrkublaða með því að hreinsa þau reglulega og gamalt húsráð segir að gott sé að nota til þess gamalt kók ( þetta seljum við samt ekki dýrara en við keyptum það).

Önnur leið er að nota tjöruhreinsi (olíuhreinsi) en sumir kvarta yfir því að þetta fari ekki vel með gúmmíið á þurrkublöðunum. Enn aðrir nota ísvara og það jafnvel mýkir upp gúmmíið. Einhverjir hafa notað WD-40 og enn aðrir uppþvottalög. Hreinsun þurrkublaða dugar þó ekki til ef blöðin sjálf eru orðin illa skemmd.

Hvað kosta þurrkublöð?

Ódýr þurrkublöð frá Trico fást hjá MAX1 Bílavaktinni fyrir flestar gerðir bíla. Þau eru alltaf til á lager á öllum verkstæðum okkar. Þú getur rennt við og keypt og við getum sett þau frítt á bílilnn.

Ef þú ert í vafa um hvaða rúðuþurrkur passa á bílinn þinn, hafðu ekki áhyggjur. Starfsfólk MAX1 ráðleggur þér um rétta stærð þurrkublaða og svo getur þú auðvitað spurt Góa snjallsvara. Þú getur einnig einfaldlega mælt lengd blaðsins. Allar líkur eru á því að sú lengd passi á bílinn þinn. Til að vera viss þá er nákvæma leit að finna á vef Trico.

Hér að neðan getur þú sé töflu yfir lengd blaðanna og verð þeirra. Kaupir þú þurrkublöð hjá einhverjum af verkstæðum MAX1 þá setjum við þau frítt á bílinn.

Trico Force. Flöt Universal þurrkublöð
VörunúmerLengd þurrkublaðsVerð m/vsk
TF350L350mm3.730
TF400L400mm3.730
TF430L430mm3.730
TF450450mm3.730
TF480L480mm4.117
TF500L500mm4.174
TF530L530mm4.373
TF550L550mm5.008
TF550R550mm5.008
TF600L600mm5.258
TF600R600mm5.258
TF650L650mm5.564
TF650R650mm5.564
TF700L700mm6.235
TF700R700mm6.235
TF730L730mm6.412
TF750L750mm6.612
TF750R750mm6.612
TF800L800mm7.019

Hin fjölmörgu nöfn rúðuþurrka

Í daglegu tali er ýmist talað um rúðuþurrkur eða þurrkublöð. Sumir spara sér jafnvel staf og skrifa rúðuþurkur eða þurkublöð, en við getum að sjálfsögðu ekki mælt með því. Enn aðrir kalla rúðuþurrkurnar vinnukonur.

Við hjá MAX1 Bílavaktinni tökum vel á móti öllum, hvaða orð sem menn nota, enda bjóðum við rúðuþurrkur í allar gerðir bíla frá flestum bílaframleiðendum heims, t.d. Toyota, Volkswagen, VW, Chevrolet, Kia, Skoda, Ford, Honda, Renault, Hyundai, Mercedes Benz, Mazda, Nissan, Suzuki, Subaru, Audi, Citroen, Bmw, Volvo, Peugeot, Jaguar, Dacia, Opel, Mitsubishi, Lexus, Isuzu, Porsche, Fiat, Jeep, Dodge, Land Rover, Chrysler og Iveco.

Hafðu samband og láttu okkur um að útvega og skipta um þurrkublöð.