Flýtilyklar
Nokian Hakkapeliitta 10 - Nýjasta kynslóð af öryggi
Nokian Hakkapeliitta 10 nagladekkið veitir öryggi við aðstæður þar sem mest er þörf á. Nýjasta kynslóð af öryggi er í Nokian Hakkapeliitta 10 þar sem blandast saman framúrskarandi grip, akstursþægindi og vistvæn efni. Nokian Tires Double Stud Technology veitir hámarksöryggi á ís og snjó, þar sem miðpinnarnir bæta hemlagrip og hröðun og naglar á öxulsvæðum hámarka grip í beygjum og við akreinaskipti. Nokian Hakkapeliitta 10 er einnig fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar.
Nokian Hakkapeliitta 10 var valið Besta nagladekkið í dekkjakönnun FÍB 2023.
Nokian Hakkapeliitta 10
- Framúrskarandi öryggi á ís og snjó
- Stöðug og nákvæm stýring
- Hámarks akstursþægindi með lágmörkuðu veghljóði
- Minni eldsneytisnotkun
Staðsetning nagla veitir framúrskarandi grip
Mestu áskoranir í vetrarveðri eru hemlunarvegalengd og skortur á gripi í beygjum eða þegar skipt erum akrein á snjómiklum vegum. Við krefjandi akstursaðstæður eru vetrardekk fyrsta vörnin. Naglatækni Nokian Hakkapeliitta gefur ökumanni meiri tíma til að bregðast við í krefjandi vetrarfærð.
Naglar dekksins eru staðsettir þannig að þeir mynda stjörnu og snúa þeir þannig að þeir hafa hámraks virkni þvert á og langsum á hjólbarðan til að tryggja framúrskarandi grip.
Hámarks akstursþægindi og nákvæm stýring
Þó að framúrskarandi grip í hálku sé nauðsynlegt, þá er stöðugleiki á blautum, þurrum og snjóþöktum vegum einnig lykilatriði við mismunandi vetraraðstæður. Ein erfiðasta vetrarfærðin er krapi á vegum, sérstaklega ef hann er örlítið frosinn. Miðja mynstursins á dekkjunum er mjög stíf, sem gerir akstursviðbrögð nákvæm án þess að missa grip. Dekkið er hannað til að auka á akstursþægindi og því er dekkið einnig sérlega hljóðlátt.
Framúrskarandi grip og minni eldsneytisnotkun
Nokian Hakkapeliitta 10 er gert til að virka í allri vetrarfærð þar sem það þolir vel hitabreytingar frá mildu vetrarveðri í krefjandi aðstæður. Dekkið er unnið úr vistvænum efnum og lögð var áhersla á að dekkið myndi draga úr eldsneytisnotkun.
Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres í 1 ár
Hakka ábyrgð® veitir viðskiptavinum sem kaupa ný Nokian Hakkapelitta dekk hjá MAX1 nýtt samsvarandi dekk án endurgjalds ef upprunalega dekkið verður fyrir óhappi. Ef hægt er að gera við dekkið á öruggan hátt verður því ekki skipt út. Viðgerðarkostnaður er ekki innifalin í Hakka Ábyrgð®. Dekkin sem falla undir Hakka Ábyrgð® eru merkt á vefnum í vefverslun.
Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres gildir í 1 ár frá kaupdegi og er tengd tilteknum bíl.
Smelltu hér og kynntu þér Hakka Ábyrgð® Nokian Tyres.
Karfan þín
Karfan er tóm.