Leitaðu

Smelltu á flokk

Drift í annað sinn á Íslandi - 29. júlí
Laugardaginn 29. júlí kl. 16.00 á neðra bílaplani MS (Mjólkursamsölunnar) við Bitruháls í Reykjavík 
Skráningarfrestur rann út 25. júlí        [  Listi yfir keppendur  ]

Nú styttist í NEXEN-drifterkeppnina, sem án efa mun vekja mikla athygli meðal allra akstursíþróttaáhugamanna hér á landi. Hér getur þú lesið stutta kynningu á keppninni og skráð þig til leiks neðst á síðunni. Við minnum á að fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því nauðsynlegt að skrá sig sem fyrst til að geta verið með.

Eins og menn muna fór fram samskonar keppni í fyrra á vegum Max1. Hún heppnaðist gríðarlega vel og var talið að um það bil 1200 áhorfendur hefðu komið til að fylgjast með keppninni.

Drifter er enska orðið yfir flakkara og raunar reknetabát einnig. Bæði í ensku og íslensku þýðir drift snjóföl eða drífa, nýfallinn snjór og stefnulaust rek eða fjúk, sem e.t.v. lýsir leikreglum Drifterkeppninnar hvað best því hún felst í eins konar „freestyle akstri“ með kröftugu spóli í hringi og skriði (slide) eftir brautinni innan tímamarka.

Keppnishaldarar NEXENdrifterkeppninnar verða BÍKR (Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur) og Max1 Bílavaktin í Reykjavík í samstarfi við dekkjaframleiðandann NEXEN, sem jafnframt er aðalstyrktaraðili keppninar.

Keppnin hefst kl. 16.00 laugardaginn 29. júlí. Hún verður haldin á neðra bílaplani MS (Mjólkursamsölunar) við Bitruháls í Reykjavík.

 

 

Keppendur eiga að mæta stundvíslega kl. 15.00. Umsjónarmaður mótorsportþáttar RÚV, Birgir Þór Bragason, verður á svæðinu með tökuvélar og mun gera keppninni góð skil í þætti sínum.

Þeir 25 keppendur sem skrá sig fyrstir fá þátttökurétt í NEXEN-drifterkeppninni. Líklegt er að fljótlega muni fyllast í keppnina miðað við viðtökurnar sem keppnin fékk í fyrra og undirtektir meðal akstursáhugamanna, m.a. á íslenska spjallvefnum www.live2cruize.com. Ef það gengur hins vegar ekki eftir og færri keppendur en 15 skrá sig til leiks verður keppninni frestað um óákveðinn tíma.

BÍKR mun hafa umsjón með framkvæmdahlið keppninnar, einkum er varðar öryggisatriði, nauðsynlegar leyfisveitingar og gæslu meðan á keppni stendur. Skráning í keppnina fer fram á þessari síðu, sjá neðar.
Skipulagið verður með þeim hætti að í upphafi fer fram skoðun á brautinni þar sem gengið/ekið er með alla keppendur gegnum brautina auk þess sem farið yfir reglur og öryggisatriði. Rásmarkið verður bleytt til að auðvelda keppendum að komast á skrið í upphafi brautar. Síðan eru eknar tvær umferðir og sú umferð sem gefur fleiri stig ræður til úrslita. Hver umferð gegnum

brautina skal að hámarki taka 3-4 mínútur fyrir hvern keppanda.

Áhorfendur fá ákjósanlegan útsýnisstað á staðnum þar sem keppnin fer fram þar sem allir ættu að geta komið sér vel fyrir og notið þessarar frábæru skemmtunar. Nægur fjöldi bílastæða verður til staðar í nágrenninu. Selt verður inná keppnina og verður aðgangseyrir kr. 500,- en frítt fyrir 11 ára og yngri í fylgd forráðamanna.

NEXEN, aðalstyrktaraðili keppninnar, gefur vegleg verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.
1.-3. sæti:  4 stk. dekk frá NEXEN af gerðinni N3000 og geta vinningshafar valið úr sex mismunandi stærðum dekkja í felgustærðinni: 16, 17 eða 18”.  
Tilþrifaverðlaun verða einnig veitt fyrir bestu tilþrif keppinnar og verða það 4 stk. 17” dekk frá NEXEN.

40% afsláttur af NEXEN dekkjum  til keppenda:  Max1 ákveðið að gefa þeim keppendum sem framvísa greiðslukvittun fyrir keppnisgjöldum 40% afslátt af NEXEN dekkjum fram að keppnisdegi. Mun þetta án efa auðvelda keppendum rekstarkostnað fyrir keppnina og í keppninni sjálfri. Keppendur eru beðnir að lesa reglur og skilyrði fyrir þátttöku vel og vandlega.

Reglur og skilyrði

Keppnisstaður verður ekki tilkynntur fyrr en föstudaginn 21. júlí. Með öllu er óheimilt að keppendur og aðrir áhugamenn fari á mótsstað til æfinga og keppni utan formlegs keppnistíma, þ.e. þá viku sem líður frá tilkynningu þangað til keppni hefst. Öryggismyndavélar munu vakta svæðið og mun þeim sem brjóta þessa reglu verða skilyrðislaust vísað úr keppni.

Lengd brautarinnar verður um 500 metrar með tveimur frjálsum svæðum og stórum drifthring sem ekinn verður þrisvar í hverri umferð.





 

Akstursaðferð má skýra með þeim hætti að keppendur þurfi að spóla af umtalsverðum krafti á hlið út brautina, að undanskildum hinum frjálsu svæðum, þar sem keppendum gefst kostur á að framkvæma frjálsar æfingar.

Dómarar verða tveir til þrír; frá akstursíþróttafélögum og sérfræðingum í mótorsporti auk keppnisstjóra, brautarstjóra og annarra starfsmanna. Hver dómari hefur yfir 500 stigum að ráða fyrir hvern keppanda. Keppnistjóri, brautarstjóri og aðrir starfsmenn eru ekki dómarar hvað varðar stigagjöf.

Stigagjöf er 500 stig fyrir fullt hús stiga sem skiptist niður með eftirfarandi hætti:

• 50 stig fyrir magn reyks frá dekkjum, fagnaðarlæti áhorfenda og hávaða í bílnum í brautinni
• 100 stig fyrir drifthring
• 50 stig fyrir hvort frjálsu svæðanna í brautinni; samtals 100 stig.
• 250 stig fyrir annað
• 20 stig í mínus fyrir hverja keilu sem fellur


Ábyrgð: Keppnishaldarar, styrkaraðilar eða samstarfsaðilar um keppnishaldið, hvort sem er Brimborg/Max1, Nexen eða BÍKR bera enga ábyrgð á mögulegu tjóni eða skemmdum á bifreiðum eða munum. Tjón og skemmdir eru eingöngu á ábyrgð eigenda og/eða umráðamanna keppnisbifreiða.


Tryggingar gagnvart þriðja aðila verða inntar að hendi af hálfu BÍKR samkvæmt reglum LÍA. Ennfremur mun BÍKR bjóða fram endurgjaldslausa aðstoð við að útvega keppendum svokallaða viðbótartryggingu á almenna tryggingu bílsins. BÍKR tryggir keppnina samkvæmt reglum LÍA fyrir tjóni á þriðja aðila.

Skilyrði fyrir þátttöku í keppninni eru:
1. Kvittun fyrir greiðslu þátttökugjalds.
2. Kvittun fyrir töku viðbótartryggingar.
3. Fullgild ökuréttindi (sýna þarf ökuskírteini).
4. Fullgild skoðun bifreiðar.
5. Viðurkenndur höfuðhjálmur fyrir akstursíþróttir.
6. Aðeins einn aðstoðarmaður má fylgja hverjum keppanda á sjálfu keppnissvæðinu.

Keppnisstjóri: Björn Ragnarsson.

Skráning

Skráningarfrestur rann út 25. júlí

Þátttökugjald er kr.7.000
og greiðist það inn á reiking BÍKR
130-26-796; kt: 571177-0569
Greiðsla verður að berast fyrir miðvikudaginn 26. júlí. 

[  Listi yfir keppendur  ]

 

 

 

 

 


Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli