Demparar gegna því hlutverki að hámarka veggrip dekkjanna við fjölbreytilegt ástand vegaryfirborðs. Ásamt dekkjum og bremsubúnaði hafa demparar afgerandi áhrif á aksturseiginleika bílsins. Lélegt ástand dempara veldur stórhættu í umferðinni vegna þeirrar tilhneyingar bílsins að hoppa og jafnvel skoppa við skyndilega breyttar aðstæður. Láttu okkur hjá Max1 kanna ástand dempara og gorma og setja nýja undir sé þess þörf. Sé ástandið bágt eru miklar líkur á að þú munir skynja mjög greinilega hve bíllinn þinn verður betri í akstri, þýðari og rásfastari með nýjum dempurum og eða gormum. Hjá Max1 skiptum við um dempara og gorma í flestum tegundum bíla.
Staðlað kerfi gerir þér mögulegt að sjá hver vinnuliðurinn er áður en verkið hefst. Sem dæmi má taka að vinnuliðurinn við að skipta um báða demparana að framan í Toyota Yaris 2004 árg er kr. 24.511.- samkvæmt tímamælingum Autodata og verktímagjaldi Max1.
Kynntu þér demparaþjónustu Max1, gerðu verðsamanburð og láttu okkur sjá um viðhaldið. Engar tímapantanir. Við gerum hlutina hratt og fljótt og örugglega.
Til viðbótar kemur verð á dempurum og efni.
Skipt um báða dempara að framan
|
Tegund |
Vélarstærð (mL) |
Árgerð |
Verkein. |
Verð m/vsk (kr.) |
|
Toyota Corolla |
1600 |
2004-2010 |
1,7 |
24.511.- |
|
Volkswagen Golf |
1600 |
2003-2008 |
1,9 |
27.396.- |
|
Suzuki Swift |
1500 |
2004-2010 |
1,6 |
23.070.- |
Skipt um báða dempara að aftan
Tegund Vélarstærð (mL) Árgerð Verkein. Verð m/vsk (kr.) Toyota Corolla 1600 2004-2010 2,1 30.279.- Volkswagen Golf 1600 2003-2008 1,3 18.745.- Suzuki Swift 1500 2004-2010 0,7 10.093.-
Max1 bílavaktin byggir verð á demparaviðgerðum á verktímum útgefnum af Autodata sem er evrópskt kerfi sem byggir á mældum og reiknuðum verktímum skv. verklagi framleiðanda bílsins. Kerfið var hannað til að sameina á einum stað staðlaða verktíma allra framleiðenda. Með því að byggja á samræmdum verktímum þá tryggir Max1 bílavaktin viðskiptavinum sínum gagnsæja, sanngjarna og samræmda verðlagningu á viðgerðum og að verð viðgerða er gefið upp áður en verk hefst.
Stöðluðu verktímarnir í Autodata kerfinu innihalda tímann sem það tekur fyrir góðan mann að klára skilgreint verk ásamt þeim tíma sem það tekur að fá og skila af sér verkbeiðni, aka bílnum í stæði og ná í viðeigandi verkfæri og varahluti sem á þarf að halda. Verktímagjaldið er 14.418 kr. með virðisaukaskatti.
Tíminn inniheldur ekki aukatíma sem geta komið til t.d. vegna þess að losa þarf sérstaklega ryðgaða hluti, fasta bolta, fjarlægja þarf aukahluti á bílnum sem ekki eru á staðalgerð viðkomandi bíls og/eða ef framkvæma þarf bilanagreiningu þar sem ekki er ljóst hvað amar að bílnum. Ef um sjaldgæfa bíltegund er að ræða og sækja þarf verkfæri og/eða varahluti lengri og tímafrekari leið þá gilda ofangreindir tímar ekki. Tímagjald fyrir aukatíma er 9.403 kr. með virðisaukaskatti. Vinsamlega leitið upplýsinga í afgreiðslu um verð á þessari þjónustu á eigin bíl.
Ávallt er haft samband við viðskiptavin ef stefnir í ófyrirséðar viðgerðir og kostnað. Viðskiptavini er þannig gefið færi á að meta hvort halda eigi áfram eða stöðva verkið.
Verð geta breyst án fyrirvara.