Leitaðu
Smelltu á flokk

Bremsur

Stöðvaðu. Gerðu verðsamanburð á hemlaþjónustu.

Á meðan tækninni fleytir fram verður það sífellt flóknara að viðhalda bílnum. Þetta á við um hemlaviðgerðir sem annað. Hemlabúnaður verður að vera í fullkomnu lagi því annars er voðinn vís. Hemlalaus, eða bremsulaus bíll eins og flestir myndu orða það, er ekki aðeins hættulegur farþegum bílsins heldur líka samborgurunum í umferðinni. Slíkur bíll er því óökuhæfur.

Láttu Max1 athuga ástand bremsubúnaðar í bíl þínum. Við skiptum um bremsuklossa, bremsudiska og bremsuborða í flestum tegundum bíla, stillum handbremsu, athugum bremsuljós og bendum þér á þau atriði sem eru aðfinnsluverð þannig að þú getir brugðist við til að tryggja öryggi þitt og annarra vegfarenda.

Það er vegna þessa sem Max1 skiptir öllu fyrir þig. Max1 gætir þess líka að þú getir gert verðsamanburð þegar þú þarft hemlaþjónustu. Max1 notast við evrópskt kerfi Autodata sem byggir á mældum og reiknuðum verktímum samkvæmt verklagi framleiðanda hvers bíls.

Staðlað kerfi gerir þér mögulegt að sjá hver vinnuliðurinn er áður en verkið hefst. Sem dæmi má taka að vinnuliðurinn við að skipta um bremsuklossa að framan á Ford Fiesta 1600 árgerð 2006 eða yngri er kr. 10.093 með virðisauka og á VW Caddy 1900 TDI árgerð 2007 kostar það kr. 12.977 samkvæmt tímamælingum Autodata og verktímagjaldi Max1.

Kynntu þér hemlaþjónustu Max1, gerðu verðsamanburð og láttu okkur sjá um viðhaldið. Engar tímapantanir. Við gerum hlutina hratt og fljótt og örugglega. 

Dæmi úr verðskrá:

Til viðbótar kemur verð á bremsuhlutum og öðru efni.

Skipt um bremsuklossa að framan

Tegund

Vélarstærð (mL)

Árgerð

Verkein.

Verð m/vsk (kr.)

Toyota Yaris

1600

2006>

0,7

10.093

Honda Civic

1800

2006|>

0,9

12.977

Mazda 3 (BK)

1600

2003-2009

0,6

8.651

Skipt um bremsluklossa og diska að framan

Tegund

Vélarstærð (mL)

Árgerð

Verkein.

Verð m/vsk (kr.)

Toyota Yaris

1600

2006>

1,1

15.860

Honda Civic

1800

2006>

1,0

14.419

Mazda 3 (BK)

1600

2003-2009

0,7

10.093

Max1 bílavaktin byggir verð á hemlaviðgerðum á verktímum útgefnum af Autodata sem er evrópskt kerfi sem byggir á mældum og reiknuðum verktímum skv. verklagi framleiðanda bílsins. Kerfið var hannað til að sameina á einum stað staðlaða verktíma allra framleiðenda. Með því að byggja á samræmdum verktímum þá tryggir Max1 bílavaktin viðskiptavinum sínum gagnsæja, sanngjarna og samræmda verðlagningu á viðgerðum og að verð viðgerða er gefið upp áður en verk hefst.

Stöðluðu verktímarnir í Autodata kerfinu innihalda tímann sem það tekur fyrir góðan mann að klára skilgreint verk ásamt þeim tíma sem það tekur að fá og skila af sér verkbeiðni, aka bílnum í stæði og ná í viðeigandi verkfæri og varahluti sem á þarf að halda. Verktímagjaldið er 14.418 kr. með virðisaukaskatti.

Tíminn inniheldur ekki aukatíma sem geta komið til t.d. vegna þess að losa þarf sérstaklega ryðgaða hluti, fasta bolta, fjarlægja þarf aukahluti á bílnum sem ekki eru á staðalgerð viðkomandi bíls og/eða ef framkvæma þarf bilanagreiningu þar sem ekki er ljóst hvað amar að bílnum. Ef um sjaldgæfa bíltegund er að ræða og sækja þarf verkfæri og/eða varahluti lengri og tímafrekari leið þá gilda ofangreindir tímar ekki. Tímagjald fyrir aukatíma er 9.403 kr. með virðisaukaskatti. Vinsamlega leitið upplýsinga í afgreiðslu um verð á þessari þjónustu á eigin bíl.

Ávallt er haft samband við viðskiptavin ef stefnir í ófyrirséðar viðgerðir og kostnað. Viðskiptavini er þannig gefið færi á að meta hvort halda eigi áfram eða stöðva verkið.

Ath. að verð geta breyst án fyrirvara


Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli