Ný Max1 stöð í Knarrarvogi
Nú í byrjun nýs árs tók Smurstöðin Vogar, Knarrarvogi 2, upp merki MAX1 bílavaktarinnar. Stöðin hefur verið lengi starfandi og því mikil reynsla og góður andi hjá starfsmönnum. Verður svo að sjálfsögðu áfram. Hinsvegar mun þjónustuþáttum stöðvarinnar fjölga svo hún standi öðrum MAX1 stöðvum á sporði. Tími þinn er dýrmæturÞjónustuflóra MAX1 er breið og dregur fyrirtækið nafn sitt af því að öllum viðgerðum á bílnum skal lokið innan við klukkustundar frá því að viðgerð hefst. MAX1 í Knarrarvogi mun sérhæfa sig líkt og áður í smurþjónustu í víðasta skilningi, s.s. skiptum á hráolíusíum, miðstöðvar/frjókornasíum og síum í sjálfskiptingum. En einnig mun viðskiptavinum verða boðin rafgeymaþjónusta, skipti á þurrkublöðum, áfylling rúðuvökva og peruþjónusta. Leiðandi í þjónustu á sínu sviði„Nýja MAX1 stöðin í Knarrarvogi er enn eitt skrefið í að gera MAX1 að leiðandi aðila í þjónustu við bíleigendur,“ sagði Sigurjón Ólafsson framkvæmdastjóri MAX1 og bætti svo við: „Með fleiri stöðvum nýtum við líka reynslu hverrar þeirra fyrir sig og getum þannig byggt upp sterka keðju þar sem bestu lausnir eru notaðar hverju sinni.“ Kynningartilboð út janúarÍ tilefni af nýju stöðinni bjóðum við fría áfyllingu á rúðuvökva út janúarmánuð. Renndu við og láttu strákana fylla á bílinn. Þú þarft ekki að panta tíma hjá MAX1 en þér er velkomið að hringja í okkur og fá góð ráð, en einnig getur þú skoðað þau ráð sem finna má hér á heimasíðunni. |
Þjónusta Max1
|