Leitaðu

Smelltu á flokk
Mikill munur á gæðum dekkja
Vetur er genginn í garð fyrir alvöru. Því er tímabært að gera bílinn hæfan til vetraraksturs, en samkvæmt lögum má aka á negldum vetrardekkjum frá og með 1. nóvember ár hvert. Að sögn Ívars Ásgeirssonar, þjónustustjóra tengdrar þjónustu hjá Brimborg, býður Max1 gott úrval vetrardekkja og auk þess faglega þjónustu við val á réttum dekkjum.
Visthæf skref
Við leggjum áherslu á visthæf skref og í samræmi við þau markmið mælum við ekki með nagladekkjum á höfuðborgarsvæðinu enda velja ökumenn hér sunnan heiða sífellt oftar heilsársdekk. Öðru máli gegnir á landsbyggðinni, þar sem snjór er að jafnaði meiri en í Reykjavík. Í borginni geta naglar undir vissum kringumstæðum gefið falskt öryggi og jafnvel er stundum verra að vera á nagladekkjum heldur en heilsársdekkjum.“
Nagladekk á landsbyggðinni
Þrátt fyrir auknar vinsældir heilsársdekkja er þó töluverður munur eftir búsetu hvað fólk velur. „Fólk úti á landi er mun meðvitaðra um hvers virði það er að vera á góðum dekkjum. Nagladekk eru þar meira í notkun vegna þess að hvorki er borið salt né sandur á þjóðvegi eins og gert er á öllum götum í þéttbýli,“ útskýrir Ívar og telur að þar eigi nagladekkin mun frekar rétt á sér.
Konur eru naglar
En einnig er munur á vali karla og kvenna segir Ívar. „Konurnar eru meiri naglar því þær hugsa meira um öryggi. En naglarnir valda miklu tjóni á götum borgarinnar og gríðarlegum aukakostnaði fyrir skattborgarana, að ekki sé nú minnst á mengunina, sem þeir framleiða," segir hann.
Mikill munur á gæðum dekkja
Sé ekið á heilsársdekkjum þarf ekki að hugsa um dekkjaskipti vor og haust. Ívar segir að heilsársdekkin séu jafn mjúk í akstri og sumardekk, þrátt fyrir grófara mynstur. „En það er afar mikilvægt að velja góð dekk til að gæta fyllsta öryggis og endingar. Það er ekki sama dekk og dekk vegna þess að dekk eru í eðli sínu hátækniframleiðsla. Munur á gæðum dekkja er svipaður og á ódýrasta bílnum á markaðnum og þeim dýrasta. Gæðin eru í samræmi við verðið. Það eru gömul sannindi og ný," segir Ívar að lokum.
Pirelli og Nokian
Meðal dekkjategunda sem Max1 hefur að bjóða eru gæðadekkin frá Nokian í Finnlandi og Pirelli frá Ítalíu. Báðar tegundirnar eru heimsþekktar fyrir mikil gæði. Að auki býður Max1 Nexendekk frá Kóreu sem einnig njóta mikill a vinsælda.
Nánari upplýsingar


Til baka
 
Þjónusta Max1
Hjólbarðaþjónusta
Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum bremsuklossa og bremsudiska í flestum bifreiðum.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir? Endurnýjun dempara og gorma í flestum bílum.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.

Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli