Rjúkandi kaffi og rúllandi dekk!

Það er mikill handagangur í öskjunni hjá Max1, núna þegar vetur konungur hefur loks rumskað í rekkjunni. Á forsíðu Fréttablaðsins í dag eru Björn, Rafal og Rimantas hjá Max1 við Jafnasel í Breiðholti á fullu við að fjarlægja sumardekkin undan bílum ökumanna og setja vetrardekkin undir.
Áframhaldandi sjókoma
Spáð er áframhaldandi sjókomu á flestum stöðum á landinu fram eftir vikunni og því er ekki seinna vænna en að gera bílinn klárann fyrir veturinn.
Engar tímapantanir
Munið að Max1 er hraðþjónusta þar sem aldrei þarf að panta tíma fyrir þjónustu. Auk Jafnaselsins er Max1 að finna á tveimur stöðum við Bíldshöfðann í Reykjavík (5a og 8) og við Tryggvabraut á Akureyri.
