Leitaðu

Smelltu á flokk
Max1 opnar við Jafnasel
Max1 bílavaktin hefur keypt rekstur og húsnæði Smur- og dekkjaþjónustunnar Breiðholti ehf við Jafnasel 6 í Reykjavík. Stöðin hefur þegar hafið starfsemi undir merkjum Max1 eftir talsverðar endurbætur á húsnæði, tækjabúnaði og fjölgun starfsmanna.

Sérsniðin þjónusta

Auk smur- og hjólbarðaþjónustu býður Max1 bílavaktin öllum bíleigendum uppá viðhalds- og viðgerðaþjónustu við bremsukerfi, dempara og rafgeyma ásamt því að skipt er um rúðuþurrkur, ljósaperur og fyllt á rúðuvöka. Þessi sérsniðna þjónusta Max1 bílavaktarinnar og það fyrirkomulag að aldrei þarf að panta tíma fyrir þjónustu eru án efa ástæða góðra viðbragða frá bíleigendum, en Max1 dregur nafn sitt af því að þjónustan tekur aldrei meira en klukkustund frá því að  hún hefst.

Aukið aðgengi

Sigurjón Ólafsson, framkvæmdastjóri Max1, segir kaupin á rekstrinum við Jafnasel vera lið í því markmiði Max1 að bæta þjónustu við bíleigendur á höfuðborgarsvæðinu.


„Þetta er fjórða þjónustustöðin, en fyrir eru Max1 stöðvar við Bíldshöfða 5a og 8 í Reykjavík og við Tryggvabraut á Akureyri. Með nýju stöðinni við Jafnasel getum við bætt þjónustuna enn við viðskiptavini okkar með bættu aðgengi þeirra að henni. Á sama tíma aukast gæðin þar sem gæðakröfur Max1 verða innleiddar á nýja staðnum,“ segir Sigurjón.



Til baka
 
Þjónusta Max1
Hjólbarðaþjónusta
Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum bremsuklossa og bremsudiska í flestum bifreiðum.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir? Endurnýjun dempara og gorma í flestum bílum.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.

Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli