Pirelli mótaröðin í ralli hafin

Pirelli mótaröðin í ralli 2007, sem BÍKR stendur að, hófst með fyrstu keppni ársins á laugardaginn var. Max1 er aðalstyrktaraðili keppninnar og veitir keppendum í mótaröðinni aðgang að glæsilegri aðstöðu til keppnisskoðana við Bíldshöfðann fyrir sérhverja keppni auk þess sem allir keppendur fá sérkjör á ralldekkjum, bæði hin heimsþekktu Pirellidekk og hin nýju Maxsport motorsport dekk, sem menn þekkja frá því í fyrra.
Úrslit helgarinnar
Úrslit helgarinnar urðu þau Íslandsmeistararnir og systkinin Daníel og Ásta Sigurðarbörn, sigruðu í fyrstu umferð Íslandsmótsins af öryggi. Hörð barátta var um næstu sæti en í 2. sæti urðu Óskar Sólmundarson og Valtýr Kristjánsson á Subaru Impreza WRX. Þriðju voru Jón Bjarni Hrólfsson og Borgar Ólafsson en þeir aka Subaru Impreza STI. Eknar voru sautján sérleiðir innanbæjar og í nágrenni Reykjavíkur. Með sigrinum taka Daníel og Ásta forystuna í Íslandsmótinu en sex umferðir verða eknar í sumar.
Nánari upplýsingar
