Leitaðu

Smelltu á flokk
Umgengni við loftþrýstingsnema

Bílar nútímans eru búnir sífellt flóknari búnaði sem er til þess fallinn að auka öryggi, auka sparneytni, minnka mengun, o.s.frv.

Nú eru margir bílar af Ford og Lincoln gerð, framleiddum í Bandaríkjunum, með búnaði sem fylgist með og vaktar loftþrýsting í dekkjum bílanna. Þessi búnaður er mikilvægur fyrir öryggi og því er áríðandi að umgangast hann af varúð þegar skipt er um dekk.

Því miður ber á því að viðskiptavinir Brimborgar verði fyrir óþægindum vegna rangra vinnubragða á einhverjum hjólbarðaverkstæðum sem valdið hafa skemmdum á búnaðinum. Því vill Brimborg sem umboðsaðili Ford og Lincoln, að gefnu tilefni vekja athygli starfsmanna hjólbarðaverkstæða á búnaðnum sem innifelur loftþrýstingsnema á innanverðri felgu á hverju hjóli sem fylgist með loftþrýstingi í dekkjunum. Tekið skal fram að hér er ekki markmiðið að sakast við tiltekin verkstæði heldur aðeins að vekja athygli allra verkstæða á búnaðinum svo komast megi hjá tjóni og óþægindum.

Bílar, sem búnir eru gaumljósi í mælaborði eins og myndin til hliðar sýnir, eru búnir loftþrýstingsskynjara við hvert hjól. Skynjarinn er staðsettur á innanverðri felgunni. Nauðsynlegt er að fara eftir verklagi framleiðenda við umfelganir og gæta varúðar.

Aðvörun vegna loftþrýstings

Gaumljósið er appelsínugult að lit og kveiknar ávallt við ræsingu bílsins. Ljósið logar í tvær sekúndur eftir ræsingu en hverfur síðan sé allt með felldu. Hverfi gaumljósið ekki að þeim tíma liðnum eða birtist fyrirvaralaust skal fara eftir þeim leiðbeiningum sem eru að finna í handbók bílsins. Dugi þær ekki er nauðsynlegt að athuga skynjara í felgunum. Í sumum tilvikum kann að vera nauðsynlegt að láta „núllstilla“ vöktunarkerfið með sérstökum búnaði hjá þjónustuverkstæði Brimborgar.

Rétt vinnubrögð

Til þess að stuðla að faglegum vinnubrögðum í þessu sambandi hefur Brimborg tekið saman leiðbeinandi gögn frá framleiðendum, sem við hvetjum starfsmenn hjólbarðaverkstæða til að kynna sér og vinna eftir.

Hér fyrir neðan getur þú smellt á og sótt leibeinigar á PDF-formi:



Til baka
 
Þjónusta Max1
Hjólbarðaþjónusta
Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum bremsuklossa og bremsudiska í flestum bifreiðum.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir? Endurnýjun dempara og gorma í flestum bílum.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.

Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli