Fáðu 20% afslátt af bremsuviðgerðum og vinnu hjá Max1!
Það er ekki alltaf nóg að sinna viðhaldi bílsins eingöngu þegar bíllinn lætur vita með tilheyrandi gaumljósi eða hljóðum. Margir aka fjölskyldubílnum án þess að þekkja raunverulegt ástand hans og getur það reynst alvarlegt og afdrifaríkt þegar bremsubúnaðurinn er annars vegar. Fyrirbyggjandi eftirlitLíkt og með annan búnað bílsins er nauðsynlegt að huga reglulega að bremsukerfi bílsins. Það er margt sem hefur áhrif á líftíma bremsukerfisins. Staðreyndin er sú að ökumaðurinn hefur til að mynda mestu áhrifin sem og umhverfið sem ekið er í. Ein alvarleg neyðarhemlun eða tíðar harkalegar hemlanir geta orsakað það að bremsurnar slitni tvisvar til þrisvar sinnum hraðar en ella. Það þýðir þó ekki að mikið betra sé að bremsa of mjúklega því þá hreinsast bremsudiskarnir ekki sem skyldi.Nauðsynlegt er að hemla reglulega mjög ákveðið til að hreinsa hemladiska af ryðmyndun. Þegar bíll hefur staðið í styttri eða lengri tíma án notkunar er hætt við því að stöðublettir myndist á diskum og er því nauðsynlegt að hemla mjög ákveðið reglulega til að hreinsa þannig bletti í burtu. Í verstu tilfellum þarf jafnvel að renna diska. Nauðsynlegt er að nota handbremsuna reglulega til að koma í veg fyrir að barkar og aðrir íhlutir festast. Hægt er að leita sér upplýsinga í handbók bílaframleiðandans um hvernig sé best að hirða hemlakerfi bílsins svo það endist sem best. Nýr bremsuvökvi á 2-3 ára frestiÞá er nauðsynlegt að endurnýja bremsuvökva eftir formerkjum framleiðanda en oftast er lagt til að skipt sé um bremsuvökva á tveggja til þriggja ára fresti.Bremsuvökvi dregur hægt og rólega í sig raka og því meiri raka því lakari sem bremsuvökvinn er að gæðum. Ef ekkert er að gert getur vatnsblandaður bremsuvökvi valdið ótímabærri tæringu á bremsukerfi sem getur þýtt fastar bremsudælur. Einna hættulegast er þó ef rakinn er svo mikill að loftpokar geti myndast við langtíma hemlun svo sem niður brekkur sem orsakar ofhitnun í vökvakerfinu og bremsuvökvinn sýður. Það þýðir í raun að bíllinn getur misst alla hemlun um stund með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Titringur við hemlunEf bíllinn þinn titrar við hemlun er einnig orðið tímabært að huga að bremsunum. Nauðsynlegt getur verið að láta skipta um bremsuklossa eða bremsuborða og huga að bremsu diskum.Titringur kemur einnig eftir styttri eða lengri stöður og því nauðsynlegt að bremsa reglulega mjög ákveðið til að stöðublettir hreinsi sig. Hafðu í huga að þegar þú sinnir bremsukerfi bílsins að þá snýr sá öryggisþáttur að þínu eigin lífi, þeirra sem þú berð ábyrgð á sem ökumaður bíls og annarra sem eru í umferðinni. Framundan eru stórar ferðahelgar og því er tilvalið að nýta sér afmælistilboð Max1þar sem hægt er að spara 20% á bremsuviðgerðum og varahlutum út ágúst mánuð. Vertu með bílinn öruggan fyrir næsta ferðalag og láttu Max1 athuga bremsurnar á bílnum þínum. Þú færð afslátt af varahlutum og vinnu og það er engin þörf á því að panta tíma. Mættu bara á næstu þjónustustöð Max1 en þær eru við Bíldshöfða 5a og 8, Jafnasel 6 og Knarrarvog 2 í Reykjavík, Dalshrauni 5 í Hafnarfirði eða við Tryggvabraut 5 á Akureyri. |
Þjónusta Max1
|