Tíu ára afmælistilboð Max1 á umfelgun og jafnvægisstillingu

Veturinn er á undanhaldi. Lóan er komin að kveða burt snjóinn og senn líður að því að páskaliljurnar láti á sér kræla og grasið fari að grænka. Þetta þýðir að tími nagladekkjanna er að líða hjá.
Nagladekkin undan 15. apríl
Reyndar er óleyfilegt að nota keðjur og neglda hjólbarða á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október nema þess sé þörf vegna akstursaðstæðna. Það er því þjóðráð að nýta sér afmælistilboð Max1 og spara sér 20% á umfelgun og jafnvægisstillingu nú þegar.
Götur á sunnanverðu landinu eru víða auðar og hafa götur á höfuðborgarsvæðinu verið auðar nánast allan veturinn. Af þessum sökum hefur svifryk verið mikið en talið er að um 35% bifreiða í Reykjavík aki um á negldum dekkjum.
Það er því mikilvægt að ekki sé ekið á negldum hjólbörðum lengur en nauðsynlegt er. Ennfremur ættu ökumenn að huga að því að skipta yfir á sumardekkin af heilsársdekkjum þar sem slit þeirra síðarnefndu getur verið mikið við þær aðstæður þar sem götur eru auðar.
Þetta tilboð gildir til 30. apríl 2010.
