Leitaðu

Smelltu á flokk
Hugaðu að frostleginum!
En til hvers er frostlögurinn? Það er algengur misskilningur að nægjanlegt sé að hafa bara nógu mikið af frostlegi á bílnum, þá sé allt í fínu lagi því þá frjósi ekki. Málið er hinsvegar flóknara en svo því frostlögur hefur í það minnsta fimmfaldan tilgang í nútímabíl. Frostlögur er kælivökvi sem er mikilvægur fyrir vélina, frostlögur í réttu hlutfalli kemur líka í veg fyrir tæringu í vatnskassa, frostlögur kemur í veg fyrir að það frjósi í vatnskassanum í miklu frosti, frostlögurinn hækkar suðumark vatnsins og kemur í veg fyrir uppgufun að miklu leiti. En til þess að allt þetta náist fram þarf frostlögur fyrst og fremst að vera rétt blandaður og þar klikka margir.

Rétt blanda er lykilinn að góðri heilsu kælikerfisins

Vandræði í kælikerfum geta verið margskonar, bílar geta glímt við stíflur, ofhitnun, leka og ryð. Til að vinna bót á þessu er eins og áður segir nauðsynlegt að blanda frostlögin í réttu hlutfalli sem er helmingur af vatni á móti helming af frostlegi. Þannig næst besta vörnin og góð heilsa kælikerfisins er tryggð eins og framast er unnt.

Algengt er að fólk bæti eingöngu vatni á kælikerfið á bílum sem leka örlítið. Þetta hefur þau áhrif að blandan þynnist með tímanum og ryðvarnaráhrifin eru þá fljót að þverra sem fljótt getur skilað rauðbrúnu vatni í vatnskassann.

Skipta þarf reglulega um frostlög


Þá er afar mikilvægt að frostþol sé mælt reglulega á bílum því það er eina góða leiðin til að sjá hvort frostlögurinn sé rétt blandaður og virkni hans góð. Reyndar er algengt að of sjaldan sé skipt um frostlög á bílum en hann ber að skipta um á tveggja til þriggja ára fresti. Spurðu þig eftirfarandi spurningar - hvenær var skipt um frostlög á mínum bíl síðast– ef þú veist ekki svarið og bíllinn er eldri en þriggja ára er best að láta mæla frostlögin og það er hægt fá gert hjá Max1. Munið líka að frostlögur er spilliefni og því ber að fylgja ákveðnum reglum við förgun og að auki er frostlögur hættulegur ef ekki er rétt með hann farið.


Til baka
 
Þjónusta Max1
Hjólbarðaþjónusta
Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum bremsuklossa og bremsudiska í flestum bifreiðum.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir? Endurnýjun dempara og gorma í flestum bílum.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.

Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli