Leitaðu

Smelltu á flokk
Max1 innleiðir nýtt upplýsingatæknikerfi

Um síðustu helgi hófst innleiðing hjá Max1 á nýju upplýsingatæknikerfi sem var þróað í nánu samstarfi við hugbúnaðarfyrirtækið Annata. Kerfið sem um ræðir er Annata IDMS (Import and Dealer Management System) - Microsoft Dynamics™ AX og er það sérsniðin heildarlausn sem mætir að fullu þörfum Max1 Bílavaktar.

Fjöldi nýrra þjónustuþátta

Kerfinu er ætlað að hjálpa Max1 að veita viðskiptavinum enn betri þjónustu og verður meðal annars hægt að innleiða fjölda nýrra þjónustuþátta sem munu gera lífið hjá viðskiptavinum auðveldara. Max1 býður margskonar hraðþjónustu eins og rafgeyma-, dempara-, smur-, hjólbarða- og bremsuþjónustu. Auk þess leigir Max1 til að mynda bíla út á meðan á viðgerð stendur svo viðskiptavinir geti forðast óþægindi þegar sinna þarf viðhaldi bíls. Með nýja upplýsingatæknikerfinu getur Max1 nú bókað bílaleigubíl um leið og hraðþjónusta er bókuð fyrir viðskiptavin og kerfið mun svo sjá um að minna viðskiptavinin á skoðunartímann, allt í sama kerfinu.

Innleiðing kerfisins hefur gengið framar vonum og virkaði kerfið hnökralaust á fyrsta vinnudegi en þar sem margs er að gæta við innleiðingu af þessari stærðargráðu eru viðskiptavinir okkar beðnir velvirðingar ef tafir eða óþægindi hljótast af þessu.



Til baka
 
Þjónusta Max1
Hjólbarðaþjónusta
Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum bremsuklossa og bremsudiska í flestum bifreiðum.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir? Endurnýjun dempara og gorma í flestum bílum.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.

Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli