Neytendur öruggir með verð á dekkjaverkstæðum Max1

Þrátt fyrir að komið sé fram í miðjan nóvember hefur veturinn varla látið á sér kræla ennþá. Þetta þýðir að margir hafa ekki enn skipt yfir á vetrardekk þó hiklaust sé ráðlegt að drífa í því sem fyrst. Hagsýnir neytendur geta þó rekist á ýmsa veggi þegar á að skipta um dekk og t.d. geta þeir átt í vandræðum með sjálfsagða hluti eins og að gera verðsamanburð.
Að þessu komst Neytendastofa þegar hún á dögunum framkvæmdi athugun á verðskrám á dekkjaverkstæðum höfuðborgarsvæðisins. Farið var á 28 dekkjaverkstæði í eigu 20 fyrirtækja og ekki voru öll dekkjaverkstæðin með sitt á hreinu.
Aðeins tíu dekkjaverkstæði með verðskrá í lagi
Að sögn Neytendastofu vakti það athygli að mikill meirihluti dekkjaverkstæðanna, eða 64% var með þessi mál í ólestri sem þýðir að aðeins 10 dekkjaverkstæði af þessum 28 voru með sýnilega verðskrá.
Hjá öllum dekkjaverkstæðum Max1 voru þessi mál hinsvegar í lagi og því engin þörf á því að senda skriflega áminningu til Max1. Hin dekkjaverkstæðin munu hinsvegar eiga von á að fá slíka áminningu, áður en gripið verður til sekta ef ekki er brugðist við ábendingum Neytendastofu.
Það er afar mikilvægt fyrir Neytendur að geta kynnt sér verð á vörum og þjónustu án mikillar fyrirhafnar og auðvitað er það til hagsbóta, fyrir þá sem bjóða hagstæðustu verðin, að fólk geti borið saman kostnað við dekkjaskipti. Þegar veturinn gengur fyrir alvöru í garð munu neytendur vita hvert á að leita eftir hagstæðu verði á dekkjaskiptum.
Vertu tímanlega
Starfsfólk Max1 minnir einnig á að gott getur verið að forðast örtröð með því að skipta yfir á vetrardekk tímanlega. Þannig sparast bæði tími og peningar og öryggið verður í fyrirrúmi á þeim tíma sem umferðin er hvað erfiðust.
Aðeins tíu dekkjaverkstæði með verðskrá í lagi
