Leitaðu

Smelltu á flokk
Max1 er kominn í Hafnarfjörðinn

Nýja Max1 hraðþjónustustöðin er í rúmlega 500 m2 húsnæði í gamla Glerborgarhúsinu við Dalshraun og verður fullmönnuð með allt að 12 starfsmenn í vinnu.

Formleg opnun verður laugardaginn 24. október.

Undirbúningur hefur gengið vel og eins og sjá má á myndinni hér til hliðar, standa prófanir á búnaði og verkferlum yfir nú síðustu dagana fyrir opnun.


Þú veist alltaf fyrirfram hvað þjónustan kostar
Stefna Max1 er að vera þar sem viðskiptavinirnir eru. Áhersla hefur því verið lögð á markvissa uppbyggingu nýrra stöðva.

Við bjóðum alla velkomna sem hentar að koma við í Dalshrauninu. Við klárum málið á innan við klukkustund og þú veist alltaf hvað verkið kostar, áður en við hefjumst handa.


Nýttu þér frábært opnunartilboð hjá Max1
Í tilefni af opnun nýju stöðvarinnar er veittur 40% afsláttur af umfelgun og jafnvægisstillingu hjá öllum Max1 hraðþjónustustöðvunum.

Það gerir kr. 3.990 fyrir hinn hefðbundna fjölskyldubíl á 12-16” dekkjum eða innan við þúsund krónur fyrir dekkið.

Opnunartilboðið hjá Max1 gildir á öllum stöðvum í Reykjavík og á Akureyri til 1. nóvember og í Hafnarfirði frá opnunardeginum 24. október.

 

Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt
Nýja Max1 hraðþjónustustöðin Dalshrauni er opin kl. 8 til 17 alla virka daga og kl. 9 til 13 laugardaga.

Komdu og nýttu þér frábæra opnunartilboðið okkar.

Yfirlit yfir Max1 hraðþjónustustöðvarnar



 

 



Til baka
 
Þjónusta Max1
Hjólbarðaþjónusta
Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum bremsuklossa og bremsudiska í flestum bifreiðum.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir? Endurnýjun dempara og gorma í flestum bílum.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.

Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli