Leitaðu

Smelltu á flokk
Vertu klár fyrir veturinn með Max1

Þegar sumri er tekið að halla er mikilvægt að huga að vetrarvörnum bílsins. Veturinn getur leikið bílinn grátt.

Bíllinn þinn þarf að vera búinn undir snarpar sveiflur í hitastigi. Næsturfrostið getur orðið ansi napurt um þetta leyti árs og með versnandi færð og skyggni verða öryggismálin einnig að vera í lagi.

Þú losnar jafnframt undan örtröðinni sem myndast yfirleitt í fyrsta snjónum eða hálkunni, með því að huga tímanlega að vetrarundirbúningi.

Við aðstoðum þig. Max1 tékklistinn hér að neðan gefur góða mynd af því helsta, sem huga þarf að í undirbúningi bílsins fyrir veturinn.

Allar nánari upplýsingar og aðstoð færðu hratt og örugglega hjá Max1.

Tékklisti Max1 fyrir veturinn:

Rafgeymir
Láttu okkur álagsmæla rafgeyminn, þér að kostnaðarlausu. Ef þú ert ekki með þurrgeymi, þarf einnig að mæla vökvahæð geymisins.
Kuldi á almennt séð illa við rafgeyma í bílum og þeim mun slakari sem geymirinn er, þeim mun „kulsæknari“ verður hann - með þeim afleiðingum að bíllinn startar ekki einn frostkaldan haustmorguninn.


Rúðuþurrkur/Rúðuvökvi
Athugaðu hvort kominn sé tími á rúðuþurrkurnar. Í frosti er auðveldara að losa ný þurrkublöð af framrúðunni og þau skemmast síður. Góðar rúðuþurrkur eru lykilatriði fyrir öryggi bílsins í rigningu, snjó og slabbi.

Þá er ekki síður mikilvægt að vera alltaf með nóg af frostþolnum rúðuvökva, sem ver sprautumótorinn gegn frostskemmdum og auðveldar þér að hreinsa tjöru af framrúðunni.


Frostlögur og frostþol
Sjálfsagður liður í undirbúningi fyrir veturinn, svo sjálfsagður að hann vill jafnvel gleymast. Frostlögur glatar eiginleikum sínum smám saman, með þeim afleiðingum að tæringarvörn vökvans verður sífellt minni. Framleiðendur ráðleggja frostlagarskipti á ákveðnu árabili, allt eftir gerð frostlagarins. Vertu viss. Láttu okkur mæla frostþol kælivökvans, þér að kostnaðarlausu.


Vetrardekk
Nagladekk eða ekki. Valið þarna á milli fer eftir aðstæðum og áherslum hvers og eins. Fyrir þá sem eru ekki á nöglum er mikilvægt að hafa hugfast, að góð vetrardekk eru frábrugðin sumardekkjum/ heilsársdekkjum. Gúmmíið í þeim er t.d. mýkra og mynstrið lagað sérstaklega að bættu veggripi í bleytu og krapi.

Kíktu á úrvalið og verðið hjá Max1. Forðastu örtröðina sem myndast í fyrstu hálku eða snjó vetrarins. Þetta gamla, góða ráð er enn í fullu gildi. Komdu núna og láttu okkur skipta um dekkin, ef þú notar naglalaus vetrardekk eða heilsársdekk.
Þú getur sparað þér bæði dýrmætan tíma og fjármuni og ert auk þess á réttu dekkjunum um leið og færðin versnar.

Notkun nagladekkja er heimil frá og með 1. nóvember n.k.nema veðrátta gefi ástæðu til annars.


Bremsur
Í vetrarfærð reynir iðulega verulega á bremsurnar. Ef borðar eða klossar eru orðnir tæpir, þá er mikilvægt að huga að endurnýjun þeirra fyrir veturinn. Fáðu álit sérfræðingsins hjá Max1.


Ljósaperur
Í skammdeginu gegna bílljósin lykilhlutverki fyrir bæði öryggi þitt og annarra í umferðinni. Láttu athuga öll ljósin reglulega og gættu þess að þrífa reglulega af tjöruna sem sest á þau.


Olía og smurning
Er nokkuð kominn tími á olíuna? Reglubundin skipti á smurolíu og smurolíusíum eru afar mikilvæg fyrir vél bílsins og endingu hennar. Léleg olía veldur ótímabæru sliti á vélinni, ekki hvað síst þegar startað er á frostköldum morgnum. Settu Max1 í olíumálin.


 

 

 

 


 



Til baka
 
Þjónusta Max1
Hjólbarðaþjónusta
Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum bremsuklossa og bremsudiska í flestum bifreiðum.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir? Endurnýjun dempara og gorma í flestum bílum.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.

Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli