Tími sumardekkjanna er runninn upp
Flestir hlakka til sumarsins, og erum við hjá Max1 engin undantekning þar á. Sumarið færir okkur öllum bjartari daga, og setur kuldann á frest. Það þýðir líka að kominn er tími til að huga að vorverkunum í bílnum. Keðjur og neglda hjólbarða má ekki nota á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október, nema þess sé þörf vegna akstursaðstæðna. Því er tímabært að draga sumardekkin fram og koma við hjá Max1. Hvort sem þú þarft að skipta, umfelga eða kaupa ný dekk þá höfum við það sem þú þarft. Þú sparar ef þú lætur skipta um dekk hjá Max1 og við eigum ný gæðadekk frá bæði Pirelli og Nokian á góðu verði. Þú ert í öruggum höndum hjá ráðgjöfum Max 1 - því við erum sérfræðingar í dekkjum. Spyrðu okkur hvað við getum gert fyrir þig!
Vertu vakandi yfir örygginu
Dekkjamynstur sem er grynnra en 3 mm getur skapað hættu, sérstaklega þegar ekið er í bleytu, því mynstrið gegnir því hlutverki að veita vatni undan dekkinu svo bíllinn fari síður á flot og missi veggrip. Kauptu ný dekk ef mynstrið er grynnra en 3 mm. Nýtt dekk er með að minnsta kosti 8 mm djúpar raufar. |
Þjónusta Max1
|