NÝTT: Max1 rúðuvökvinn!

Max1 hefur nú hafið framleiðslu og sölu á úrvals rúðuvökva. Vökvinn kemur í 2,5 lítra og 5,0 lítra brúsum; og er hægt að nálgast á öllum Max1 stöðvum.
Hreinsar vel rúður og þurrkublöð
Max1 rúðuvökvinn er fyrirfram blandaður og því tilbúinn á rúðusprautukútinn. Vökvinn hefur öfluga eiginleika til að hindra ísmyndun og hreinsa tjöru, salt, skordýr og önnur óhreinindi af rúðum og þurrkublöðum. Frostþolið er -18°; svo má blanda hann 1:2 með vatni að sumri til. Vökvinn skemmir ekki lakk-, plast- eða gúmmíhluti á bílnum.
MAX1 rúðuvökvinn er gæðavara
Max1 rúðuvökvinn er gæðavara en fæst á afar hagstæðu verði! Kíktu við á eina af þjónustustöðvum Max1 og nældu þér í þessa úrvals vöru.
