Leitaðu

Smelltu á flokk
Max1 aðalstyrktaraðili Íslandsmeistaramótsins í ralli 2008

 

Max1 var aðalstyrktaraðili Íslands- meistaramótsins í ralli sem gekk nú undir nafninu Pirelli mótaröðin í ralli. Lokaáfangi mótsins var Alþjóðarallið sem fram fór í Reykjavík og nágrenni, um síðustu helgi í 29. skipti. Þessi síðasti hluti Pirelli móta- raðarinnar 2008 heppnaðist vel þrátt fyrir heldur skrykkjótt veðurfar.

Sigruðu með naumindum

Að þessu sinni voru það Jón Bjarni Hrólfsson og Borgar Ólafsson á Mitsubishi Lancer EVO 7 sem náðu að sigra Alþjóðarallið aðeins hársbreidd á undan næstu mönnum, þeim Sigurði Braga Guðmundssyni og Ísak Guðjónssyni. Þrátt fyrir annað sætið náðu Sigurður og Ísak að tryggja sér sigur í Pirelli mótaröðinni.

Erfið barátta fram á síðustu stundu

Alls tóku 33 keppendur þátt í Alþjóðarallinu, sem hófst á Austurvelli og lauk við Perluna eftir þriggja daga hörkubaráttu. Farið var um 1.050 km leiðarkafla m.a. í Rangárþingi ytra og Kaldadal en þar af voru 326 km á sérleiðum m.a. á Reykjanesi og í Gufunesi. Aðeins tuttugu áhafnir náðu í mark en margir lentu í vandræðum á leiðinni.


Nánari upplýsingar um mótið




Til baka
 
Þjónusta Max1
Hjólbarðaþjónusta
Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum bremsuklossa og bremsudiska í flestum bifreiðum.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir? Endurnýjun dempara og gorma í flestum bílum.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.

Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli