Leitaðu

Smelltu á flokk
Vandað til valsins á Nokian dekkjum

Nokkrir starfsmenn frá Max1 lögðu í ferðalag yfir Atlantshafið, nánar tiltekið til Finnlands. Þangað fóru þeir til dekkjaframleiðandans Nokian til að kynna sér vetrardekk við hinar „fullkomnu aðstæður“. Enda er engu til sparað til að geta boðið uppá úrvals dekk, sem henta íslenskum aðstæðum, á Max1.

Vandað til verksins
Hópurinn frá Max1 lagði af stað í förina til Finnlands til að fá fyrirlestra um, og prófa af eigin raun mismunandi vetrardekk. Prufuakstrar fóru fram á þrem ísilögðum vötnum með mismunandi brautum hvert. Ein var kringlótt, önnur í hlykkjum og sú þriðja með hinu svokallaða elgsprófi. Til útskýringar þá fer elgsprófið fram á þann máta, að keyrt er á ákveðini ferð og svo snarneglt niður og lagt á (líkt og ef elgur væri á veginum). Ekið var um hverja braut á mismunandi bíl og var þá hægt að sjá sérstaka eiginleika hverrar dekkjategundar fyrir sig. Munurinn á dekkjunum fólst annarsvegar í munstrinu á dekkjunum og hinsvegar hvort þau voru negld eða ónegld. Þrátt fyrir að keyra á algjörlega hálum fleti mátti greina mikinn mun á eiginleikum dekkjanna og því úr vöndu að ráða.

Vel heppnuð ferð
Eftir ítarlegar prófanir á bílunum með alls konar hringsnúningum fundu starfsmenn Max1 hin ákjósanlegustu dekk er bera heitið WR G2.  Það eru ónegld heilsársdekk með sérstöku munstri sem gefur afar gott grip. Henta þau að mati starfsmannanna allra best fyrir hinar íslensku aðstæður. Búast má við dekkjunum í apríl á Max1.  



Til baka
 
Þjónusta Max1
Hjólbarðaþjónusta
Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum bremsuklossa og bremsudiska í flestum bifreiðum.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir? Endurnýjun dempara og gorma í flestum bílum.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.

Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli