Max1 í rallinu

Undanfarin ár hefur Max1 stutt dyggilega við Íslandsmeistaramótið í ralli. Er því ánægjulegt að tilkynna að fyrirtækið hefur nýlega endurnýjað samning sinn við Bifreiðaíþróttaklúbb Reykjavíkur (BÍKR) vegna komandi vertíðar 2008. Keppendur hafa aldrei verið jafn margir og fyrirkomulagið metnaðarfyllra en áður hefur þekkst. Má því búast við harðri og skemmtilegri keppni í sumar.
Pirelli mótaröðin í ralli 2008
Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og áður. Allar keppnir í Íslandsmeistarmótinu í ralli 2008 verða hluti PIRELLI mótaraðarinnar í ralli 2008. Pirelli gæðadekkin, sem seld eru hjá Max1, eru leiðandi í rallheiminum og hafa skilað ófáum titlum til rallökuþóra víða um heim.
Aðstaða til skoðana og viðgerða
Max1 mun aðstoða við undirbúning Pirelli mótaraðarinnar í ralli með því að leggja til aðstöðu hjá Max1 við Jafnasel 6 fyrir keppnisskoðun fyrir öll mót ársins. Ennfremur leggur fyrirtækið til aðstöðu fyrir viðgerðir fyrir Rallí Reykjavíkur hjá Max1 við Bíldshöfða 5a. Að auki mun nýliðaflokkurinn í ralli bera nafnið Max1 flokkur. Max1 hvetur alla til að fylgjast vel með í sumar og verða vitni að spennandi og skemmtilegum keppnum.
Nánari upplýsingar
