Leitaðu

Smelltu á flokk
Fréttir
16.07.2010
30% afsláttur af sumardekkjum á lager!
Nú gefst einstakt tækifæri til að fá sumardekk á frábæru verði því Max1 býður nú 30% afslátt í júlí af öllum sumardekkjum á lager í tilefni þess að Max1 er 10 ára í ár.
30.06.2010
Fáðu 20% afslátt af bremsuviðgerðum og vinnu hjá Max1!
Það segir sig sjálft að einn mikilvægasti öryggisbúnaður bílsins eru bremsurnar, þær ásamt góðum dekkjum er það eina sem getur stöðvað bílinn örugglega. Þó er það svo að flestir aka fleiri þúsund kílómetra án þess að huga að bremsunum og taka fyrst við sér þegar viðvörunarljós kviknar í mælaborðinu eða óhljóð koma frá hjólabúnaði. Fram að því getur hinsvegar þurft að skoða ýmis atriði reglulega til að öryggis bílsins sé eins og best verður á kosið.
06.05.2010
Tíu ára afmælistilboð Max1 á dekkjum
Þeim sem vantar ný dekk geta teki gleði sína í maí því Max1 heldur áfram að fagna 10 ára afmælinu. Þessu sinni býður Max1 20% afslátt af gæða dekkjum eins og Nokia, Pirelli og fleiri gerðum. Það eru því viðskiptavinir Max1 sem fá afmælisgjafirnar í tilefni 10 ára afmælisins.
14.04.2010
Nagladekkin undan bílnum 15. apríl, nýttu þér tilboð hjá Max1
Nú eiga nagladekkin að fara undan bílnum og það vill svo til að Max1 fagnar á sama tíma tíu ára afmæli. Max1 býður því fimmtung í afslátt af umfelgun og jafnvægisstillingu. Það er engin þörf á að bóka tíma, komdu bara á staðinn!
31.03.2010
Tíu ára afmælistilboð Max1 á umfelgun og jafnvægisstillingu
Það er stundum sagt að eitthvað gerist ekki á hverjum degi. Það á hinsvegar ekki við á Max1 sem fagnar 10 ára afmæli sínu nánast daglega enda er um stóráfanga að ræða. Hefðbundið er að afmælisbarnið fái afmælisgjafir en í tilfelli Max1 eru það viðskiptavinirnir sem fá afmælisgjafirnar. Max1 býður því í apríl upp á afmælistilboð. 20% afslátt af umfelgun og jafnvægisstillingu.
19.03.2010
Max1 er tíu ára og býður afmælistilboð
Max1 fagnar um þessar mundir 10 ára afmæli og af því tilefni býður Max1 viðskiptavinum sínum upp á afmælistilboð, 20% afslátt af smurningu.
18.03.2010
Nú er Max1 líka á Facebook
Starfsfólk Max1 spyr sig reglulega hvað það getur gert til að gera meira fyrir viðskiptavininn. Svarið í þetta skiptið er Facebook. Samskiptasíðan vinsæla hentar afskaplega vel þeim sem skipta öllu og það er Max1. Max1 skiptir út þurrkublöðum, dekkjum, rafgeymum, bremsuklossum, dempurum, perum og þjónustar bílinn og þrífur.
15.02.2010
Hugaðu að frostleginum!
Veturinn er ekki alveg búinn ennþá þótt veðrið hafi verið með afbrigðum milt og gott frá áramótum víða á landinu. Nú hefur hinsvegar kuldinn sótt í sig veðrið og framundan er umhleypingasamur tími þar sem algengt er að skiptist á skin og skúrir, frost og hlýindi. Ekki hafa allir hugað að frostleginum hjá sér ennþá og borgar sig að hafa vaðið fyrir neðan sig í þeim efnum.
30.12.2009
Gleðilegt ár!
Starfsfólk Max1 vill nota tækifærið og óska ykkur gleðilegs nýs árs. Við þökkum einnig góð samskipti á árinu sem er að líða og óskum ykkur gleðilegrar hátíðar.
25.11.2009
Max 1 fínstillir tækin í Dalshrauni og þú færð gott tilboð
Í Dalshrauni 5 er nú boðið upp á alla almenna smurningu fyrir bíla. Á meðan tækin eru prófuð færð þú gott tilboð.
17.11.2009
Max1 innleiðir nýtt upplýsingatæknikerfi
Max1 hefur innleitt nýtt upplýsingatæknikerfi, Annata IDMS, og framundan eru nú fyrstu dagarnir í nýju umhverfi kerfisins hjá Max1 bílavaktinni
16.11.2009
Neytendur öruggir með verð á dekkjaverkstæðum Max1
Verðsamanburður á dekkjaverkstæðum getur verið erfiður ef verð eru ekki sýnileg neytendum. Neytendastofa kannaði þessi mál og komst að því að hjá Max1 eru þessi mál að sjálfsögðu í góðu lagi.
29.10.2009
Vinningshafi í þjónustukönnun Max1
Vinningshafi hefur verið dreginn út þjónustukönnunar Max1 í nýjum notuðum bílum. Vinningurinn er glæsilegur kvöldverður á Hótel Holt fyrir tvo.
20.10.2009
Max1 er kominn í Hafnarfjörðinn
Max1 bílavaktin opnar nýja hraðþjónustustöð í Dalshrauni 5. Af því tilefni því býður Max1 40% afslátt af umfelgun og jafnvægisstillingu. Þetta frábæra opnunartilboð gildir til 1. nóvember hjá öllum Max1 stöðvunum.
18.09.2009
Vertu klár fyrir veturinn með Max1
Veturinn getur leikið bílinn grátt. Kannaðu hvort vetrarvarnir bílsins séu örugglega í lagi. Renndu í gegnum tékklista Max1 ...
20.08.2009
Max1 kynnir fljótvirkan skordýrahreinsi
Það er óskemmtilegt að sjá óþrifnaðinn framan á bílnum eftir ferðalagið, og oft erfitt að ná skordýrunum af með góðu móti. Skordýrahreinsir Max1 auðveldar...
12.06.2009
Þrifþjónusta - Nýjung hjá Max1
Max1 í Reykjavík eykur nú við þjónustuna og býður þrif fyrir allar tegundir bíla. Hægt er að velja á milli
03.04.2009
Nýr opnunartími Max1
Virka daga 8:00 til 17:00. Opið að Bíldshöfða 5a á laugardögum 9:00 til 13:00.
02.04.2009
Tími sumardekkjanna er runninn upp
Hvort sem þarf að skipta um dekk, umfelga eða kaupa ný, þá bjargar Max1 málunum.
23.01.2009 08.01.2009
NÝTT: Max1 rúðuvökvinn!
Max1 hefur nú hafið framleiðslu og sölu á úrvals rúðuvökva. Vökvinn kemur í 2,5 lítra og 5,0 lítra brúsum; og er hægt að nálgast á öllum Max1 stöðvum.
28.11.2008
Max1 verður opið að Bíldshöfða 5
Max1 verður opið að Bíldshöfða 5, laugardaginn 13. desember frá klukkan 9-13. Heitt kaffi á könnunni. Verið velkomin!
07.11.2008
Opnunartímar á Max1, laugardaginn 13. nóvember
Þjónustustöð Max1 verður opin á Bíldshöfða 5 , laugardaginn 13. nóvember frá klukkan 9-13. Heitt á könnunni meðan biðið er. Verið velkomin!
24.10.2008
Opnunartímar á Max1, laugardaginn 25. október
Þjónustustöð Max1 verður opin á Bíldshöfða 5, Bíldshöfða 8, Jafnarseli Breiðholti og Akureyri, á laugardaginn 25. október frá klukkan 9-13. Heitt á könnunni meðan biðið er. Verið velkominn! Starfsmenn Max1
20.10.2008
Nordman2 dekk loks fáanleg á Íslandi
Max1 hefur hafið innflutning og sölu á Nordman2 gæðadekkjum. Dekkin eru á einstaklega hagstæðu verði og eru fáanleg í öllum helstu stærðum fyrir fólksbíla, bæði neglda og óneglda.
26.09.2008
Opnanir Max1 um helgina
Opið verður á Max1 Bíldshöfða 5A, 27. sept. frá 9-13. Aðrar stöðvar eru lokaðar þessa helgi.
15.09.2008
Þjónusta Max1 vekur góð viðbrögð
Eigandi Ford Focus bíls, skrifaði Velvakanda bréf á dögunum þar sem hann lýsti yfir ánægju sinni með þá afbragðsþjónustu sem hann fékk hjá Max1. Hér kemur úrdráttur úr bréfinu sem birtist í Morgunblaðinu 13. sept. sl.
27.08.2008
Max1 aðalstyrktaraðili Íslandsmeistaramótsins í ralli 2008
Max1 var aðalstyrktaraðili Íslandsmeistaramótsins í ralli sem gekk nú undir nafninu Pirelli mótaröðin í ralli. Lokaáfangi mótsins var Alþjóðarallið sem fram fór í Reykjavík og nágrenni, um síðustu helgi í 29. skipti.
26.08.2008
Olís-kortin í notkun hjá Max1
Max1 hefur komist að samkomulagi við Olís og bæst í hóp fyrirtækja sem veita afslátt gegn framvísun Olís-korta. Nú er hægt að nota viðskiptakort Olís, til að greiða fyrir vörur og þjónustu hjá Max1.
19.06.2008
Losaðu þig við gömlu tútturnar
Nú er tækifærið til að losna við gömlu dekkin sem taka dýrmætt pláss og safna ryki inni í geymslu. Nú getur þú losnað við gömlu tútturnar og fengið gæðadekk í staðinn. Við greiðum 2.500 kr. fyrir hverja gamla túttu upp í nýtt dekk. Við sjáum einnig um að farga gömlu dekkjunum þínum á umhverfisvænan hátt.
30.05.2008
Breyttu túttunum undir bílnum í gæðadekk á Max 1
Bílavakt Max1 leggur af stað í umfangsmikið umhverfis- og öryggisátak sem er í samræmi við stefnu Max1 í umhverfis- og gæðamálum. Markmið átaksins er að bíleigendur geti komið við hjá Max1 og skipt út lélegum túttum upp í ný gæðadekk en síðan fargar Max 1 túttunum á viðeigandi hátt.
25.04.2008
Verðkönnun staðfestir hagstætt verð á Max1
Nýlega birtist frétt í 24 stundum um verðkönnun á bremsuklossum meðal helstu söluaðila. Í henni má sjá að Max1 er með eitt hagstæðasta verðið á markaðnum. Eru þessar niðurstöður ákaflega góðar í ljósi þess að Max1 selur einungis original varahluti framleidda af Ford. Rannsóknir hafa sýnt að orginal hlutir frá Ford þola meira álag og slitna síður en staðkvæmdarpartar. Gæði ásamt lágu verði eru í fyrirrúmi á Max1.
26.03.2008
Vandað til valsins á Nokian dekkjum
Nokkrir starfsmenn frá Max1 lögðu í ferðalag yfir Atlantshafið, nánar tiltekið til Finnlands. Þangað fóru þeir til dekkjaframleiðandans Nokian til að kynna sér vetrardekk við hinar „fullkomnu aðstæður“. Enda er engu til sparað til að geta boðið uppá úrvals dekk, sem henta íslenskum aðstæðum, á Max1.
31.01.2008
Max1 í rallinu
Undanfarin ár hefur Max1 stutt dyggilega við Íslandsmeistaramótið í ralli. Er því ánægjulegt að tilkynna að fyrirtækið hefur nýlega endurnýjað samning sinn við Bifreiðaíþróttaklúbb Reykjavíkur (BÍKR) vegna komandi vertíðar 2008.
18.01.2008
Max1 með lægsta verð á þurrkublöðum
Í dagblaðinu 24 stundum birtast reglulega örfréttir frá Neytendasamtökunum undir heitinu Neytendavaktin, þar sem birtar eru verðkannanir samtakanna á hinni ýmsu vöru og þjónustu. Í vikunni birtist verðkönnun meðal helstu söluaðila á höfuðborgarsvæðinu þar sem kannað var verð á ódýrustu og dýrustu 60 cm löngu þurrkublöðunum. Samkvæmt þessari könnun Neytendasamtakanna er verðið lægst hjá Max1 og dýrast á Shellstöðvunum.
10.01.2008
Ný Max1 stöð í Knarrarvogi
Nú í byrjun nýs árs tók Smurstöðin Vogar, Knarrarvogi 2, upp merki MAX1 bílavaktarinnar. Stöðin hefur verið lengi starfandi og því mikil reynsla og góður andi hjá starfsmönnum og mun það að sjálfsögðu haldast. Hinsvegar mun þjónustuþáttum stöðvarinnar fjölga svo hún standist öðrum MAX1 stöðvum á sporði.
31.10.2007
Mikill munur á gæðum dekkja
Vetur er genginn í garð fyrir alvöru. Því er tímabært að gera bílinn hæfan til vetraraksturs, en samkvæmt lögum má aka á negldum vetrardekkjum frá og með 1. nóvember ár hvert. Að sögn Ívars Ásgeirssonar, þjónustustjóra tengdrar þjónustu hjá Brimborg, býður Max1 gott úrval vetrardekkja og auk þess faglega þjónustu við val á réttum dekkjum.
30.10.2007
Rjúkandi kaffi og rúllandi dekk!
Það er mikill handagangur í öskjunni hjá Max1, núna þegar vetur konungur hefur loks rumskað í rekkjunni. Á forsíðu Fréttablaðsins í dag eru Björn, Rafau og Rimas hjá Max1 við...
01.10.2007
Max1 opnar við Jafnasel
Max1 bílavaktin hefur keypt rekstur og húsnæði Smur- og dekkjaþjónustunnar Breiðholti ehf...
21.08.2007
Pirelli mótaröðinni í ralli lokið
Alþjóðarallið 'Pirelli Rally Reykjavík' var haldið helgina 16. til 19. ágúst og var rallið síðasti...
24.05.2007
Mikil spenna í annarri umferð Pirelli mótaraðarinnar
Önnur umferð Pirelli mótaraðarinnar í ralli 2007, sem BÍKR stendur að, fór fram um liðna...
07.05.2007
Pirelli mótaröðin í ralli hafin
Pirelli mótaröðin í ralli 2007, sem BÍKR stendur að, hófst með fyrstu keppni ársins á...
07.05.2007
Pirelli rallýdekkin eru komin
Hin frábæru ralldekk frá Pirelli eru komin til landsins. Um er að ræða bæði 195/65 R15 og...
07.05.2007
Maxsport motorsport dekkin komin
Maxsport motorsport keppnisdekkin eru komin til landsins. Dekkin frá Maxsport eru frábær
13.03.2007
Rallökuþórar eingöngu á Pirelli
Pirelli og akstursíþróttasamtökin FIA hafa gert þriggja ára samning ...
13.03.2007
Allt á fullu við Bíldshöfðann
Nýtt og glæsilegt húsnæði Max1 við Bíldshöfða 5A tekur senn á sig endanlega og flotta mynd. Þjónustan er komin á fullan skrið við viðskiptavini okkar enda þótt enn sé verið að ganga endanlega frá utandyra.
15.02.2007
Lokað á Breiðhöfða 1 vegna flutninga föstudaginn 16. febrúar
Vegna flutninga verður lokað hjá Max1 við Breiðhöfða 1 í Reykjavík föstudaginn 16. febrúar...
05.01.2007
Janúartilboð hjá Max1 !
Í janúar fylgja sumardekk með öllum nýjum Pirelli og Nokian vetrardekkjum...
07.12.2006
Öryggispúði í kaupbæti
Nú þegar veturinn er genginn í garð með hálku og öðrum tilheyrandi áhættuþáttum í umferðinni er mikilvægt að hafa öryggið í fyrirrúmi.
09.11.2006
Loftþrýstingsnemar
Nýlega barst Max1 bréf frá Brimborg, þar sem vakin er athygli á loftþrýstingsnemum sem eru í mörgum tegundum Ford...
08.11.2006
Metvelta hjá Max1
Það er ekki ónýtt að geta sagt frá því hér að á sama tíma og Max1 er að halda uppá sex ára afmæli sitt um þessar mundir sýnir Max1 metveltu ...
13.10.2006
Mikil gæði Nokian vetrardekkjanna staðfest
Nýlega voru gæði vetrardekkja könnuð í sameiginlegri úttekt Motor í Noregi, Aftonbladet og Auto Motor & Sport í Svíþjóð, Tekniikan Mailma ...
02.10.2006
Focus sigraði á Pirelli
Borgar Ólafssoni og Jón Bjarni Hrólfsson lönduðu sigri í sínum flokki á Íslandsmeistaramótinu í ralli, sem...
09.08.2006
Fjör á Drifter Max1
Það var líf og fjör á Drifter- keppni Max eins, sem haldin var á plani Mjólkursam- sölunnar í Reykjavík í lok júlímánaðar...
21.07.2006
Hin vinsæla Drifterkeppni haldin í annað sinn
Max1 bílavaktin í Reykjavík og Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur, BÍKR, standa ásamt hjólbarðaframleiðandanum Nexen...
14.07.2006
Öryggið veltur á örfáum millimetrum
Í nýlegri rannsókn sem breska tímaritið Auto Express gerði og birti 5. júlí kemur fram að millimetrarnir geta ráðið milli lífs og dauða þegar kemur að mynstri dekkja.
14.07.2006
Sigurganga Ford Focus heldur áfram í rallinu
Fjórða umferð Pirelli rallsins lauk um síðustu helgi og hélt glæsileg sigurganga þeirra Jóns Bjarna og Borgars á Ford Focus áfram.
06.07.2006
Pirelli dekk fá úrvalseinkunn í gæðaprófunum
Í nýrri gæðakönnun á sumardekkjum sem framkvæmd er af stærstu bifreiðaeigendafélögunum í Evrópu fengu Pirelli-dekkin frábæra umsögn.
12.06.2006
Max1 opnar nýja og glæsilega stöð að Bíldshöfða 8
Max1 Bílavaktin hefur nú aukið þjónustu sína með opnun nýrrar hraðþjónustustöðvar.
23.05.2006
Focus vann aftur
Annarri umferð á rallvertíð LÍA á árinu er lokið og vann Focus aftur í sínum flokki, 2000 flokknum...
17.05.2006
Max1 styrkir rall LÍA
Max1 og Landsamband íslenskra akstursíþrótta- manna (LÍA) hafa gert með sér viðamikinn samning...
17.05.2006
Max1 styrkir rallökumennina Jón og Borgar
Max1 styður við bakið á Jóni Bjarna Hrólfssyni og Borgari Ólafssyni á keppnis- tímabilinu í ralli 2006...
18.04.2006
Sumardagurinn fyrsti
Opið hjá Max1 Sumardaginn fyrsta.
15.03.2006
Breytingar hjá Max1 á Bíldshöfða
Nú er unnið hörðum höndum að breytingum og endurbótum á húsnæði Max1 að Bíldshöfða 8 og hefur starfseminni þar verið lokað tímabundið þar til að framkvæmdunum lýkur. Starfsemi Max1 að Breiðhöfða 1 er þó í fullum gangi og bendum við viðskiptavinum á að snúa sér þangað.
03.02.2006
Max1 eykur þjónustu við bíleigendur
jeppa og pallbíladekk bætast við vöruúrvalið. Max1 Bílavaktin hefur nú aukið við þjónustu sína í því skyni að gera enn betur við bílaeigendur á Íslandi. Ný þjónustustöð hefur verið opnuð í Reykjavík, hafinn hefur verið innflutningur á þekktum gæðadekkjum fyrir jeppa og pallbíla auk...
 
Þjónusta Max1
Hjólbarðaþjónusta
Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli
Bremsuþjónusta
Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum bremsuklossa og bremsudiska í flestum bifreiðum.
Smurþjónusta
Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.
Demparaþjónusta
Eru dempararnir lélegir? Endurnýjun dempara og gorma í flestum bílum.
Rafgeymaþjónusta
Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.
Önnur þjónusta
Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.

Max1 Reykjavík: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnasel 6, Knarrarvogi 2, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Hafnarfirði: Dalshrauni 5, sími/skiptiborð 515 7190
Max1 Akureyri:  Tryggvabraut 5, sími 515 7050

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli